Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
11.2.2008 | 00:09
Obama vinnur Maine forvalið
Það kemur örlítið á óvart að Obama vinnur forvalið sem haldið var í dag í Maine ríki því fyrirfram voru margir á því að Clinton ynni sigur þar.
Obama virðist fá um 58% og Clinton 41% en það er þá líka meiri munur en maður átti von á að sjá.
Uppfært: Lokatölur, Obama 59% og Clinton 40%.
Annars hefur Clinton verið í einhverjum vandræðum núna því hún tapaði stórt í gær, tapar í dag og ekki er gott útlit fyrir hana á þriðjudaginn en þá eru haldin þrjú prófkjör.
Í dag skipti hún um framkvæmdastjóra kosningabaráttunnar hjá sér og vekur það nokkra eftirtekt þar sem einungis tveir dagar eru í mikilvæg prófkjör. Það er jafnvel farið að tala um að hún sé að nota "Giuliani" aðferðina. Sleppa ríkjum og ætla sér að vinna í þeim stóru sem þá í þessu tilviki er Texas og (Vermont) Ohion (leiðrétt) í byrjun mars. Það barst einmitt yfirlýsing frá baráttu hennar strax á laugardagskvöld áður en tölur birtust þar sem talaðar voru niður væntingar hennar til þessara kosninga og bent á að Obama hefði eytt miklu meira fé í auglýsingar en hún.
Hjá Repúblikönum er Huckabee ekki sáttur með úrslit í Washington, segir að talningu hafi verið hætt áður en allt var talið og er að skoða frekari aðgerðir í því máli.
Og Ron Paul heldur áfram byltingunni sinni:
If I may quote Trotsky of all people, this Revolution is permanent
Ég er bara farinn að kunna ágætlega við hann eins og maður kíkti ekkert á hann í fyrstu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.2.2008 | 14:39
Misgóðar ákvarðanir
Það er alveg ljóst að fólk tekur misgóðar ákvarðanir sem nær alltaf er hægt að sjá hve gáfulegar eða ógáfulegar eru eftirá.
Hitt er líka ljóst að við í björgunarsveitum landsins spyrjum ekki að því hve gáfulegar ákvarðanir fólks eru sem leiða það í þannig aðstæður að leita þarf aðstoðar.
Okkar hlutverk er hins vegar að veita aðstoð þegar á þarf að halda og það er gert án flokkunar.
Ég held að menn verði að fara ákaflega varlega í umræðuna um "hvað kostar þetta" og "láta borga fyrir björgun". Það kemur frekar til með að valda hættulegri aðstæðum frekar en fækka ógáfulegum ákvörðunum að mínu mati.
![]() |
Lögðu á lokaða Holtavörðuheiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.2.2008 | 03:26
Úrslit prófkjörs í Louisiana
Þegar rétt tæplega helmingur atkvæða hafa verið talin í prófkjöri Demókrata í Louisiana hefur Obama verið lýstur sigurvegari í því ríki. Þar með hefur hann unnið öll þrjú ríkin þar sem kosningar voru í dag þar sem hann var fyrir nokkru lýstur sigurvegari í Washington ríki einnig (68-31). Svo má ekki gleyma Jómfrúreyjum en þar vann Obama líka.
Útgönguspár virtust gefa þennan sigur í Louisiana til kynna og fljótlega eftir að tölur fóru að berast mátti ljóst vera í hvað stefndi.
Staðan er eins og er svona;
Obama 54%, Clinton 38%
Hjá Repúblikönum er slagurinn harðari en mér sýnist Mike Huckabee vera að sigra bæði í Louisiana og Washington. Það er þó alls ekki víst en ef svo fer eru það óvænt tíðindi og þó svo að hann hafi ákaflega lítinn möguleika á að vinna McCain í útnefningarslagnum þá setur þetta vissulega strik í reikninginn fyrir McCain. Hann lítur ekki út sem sigurvegari nákvæmlega núna heldur virðist hann vera fremur viðkvæmur og greinilegt að hann þarf að taka á hlutunum til að klára slaginn.
Huckabee getur þá sáttur náð því sem sumir telja takmark hans með því að halda slagnum áfram, að fá fleiri kjörmenn en Romney. (Og kannski benda á sjálfan sig sem varaforsetaefni í leiðinni).
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2008 | 01:56
Obama vinnur í Nebraska
Það er komin nokkur mynd á úrslit í forvali Demókrata í Nebraska en þar hafa verið talin tæplega 80% atkvæða.
Obama er með 69% en Clinton 31%. Þessar tölur geta eitthvað breyst en ekki mikið enda er búið að lýsa Obama sigurvegara forvalsins í ríkinu.
Þetta er í takt við það sem reiknað var með í herbúðum hans fyrir forvalið í dag, heldur betra meira að segja ef eitthvað er.
Nú er spurningin hvernig niðurstaðan verður í Louisiana en ætla má að Clinton gangi betur þar og síðan ennþá betur í Maine á morgun.
10.2.2008 | 01:22
Lítur vel út í Washington fyrir Obama
Það eru byrjaðar að berast atkvæðatölur (ríkiskjörfundarmannatölur) úr Washingtonríki og þær líta nokkuð vel út fyrir Obama.
Um það bil fjórðungur atkvæða hefur verið talinn og er Obama með 66% á móti 33% hjá Clinton. Þetta er aðeins yfir því sem reiknað var með í herbúðum hans en það verður líka að segjast að ekki er alveg víst hvaðan í ríkinu þessar tölur berast og því geta orðið þónokkrar breytingar þegar á líður.
Annars er kerfið óhemjuflókið í Washington í ár. Það eru bæði "caucus" og "primary" en hjá Demókrötum gildir bara forvalið (caucus) en hjá Repúblikum gilda bæði forvalið og prófkjörið. Þetta er til komið vegna ágreinings óháðra kjósenda við flokkana sem vildu hafa lokuð forvöl en þá kærðu óháðir kjósendur þá ákvörðun. Niðurstaðan var sú að halda bæði en Demókratar í ríkinu fóru þá leið að prófkjörið gildir ekki.
Einfalt og gott.
9.2.2008 | 21:44
Huckabee vinnur Kansas
Úrslit eru ljós í forvali Repúblikana í Kansas en þar hefur Mike Huckabee unnið yfirburðasigur og fengið alla kjörmenn ríkisins, 33 talsins.
Það á þó eftir að telja 14% en staðan er svona:
Huckabee 60%
McCain 24%
Paul 11%
Romney 3%
Ekki margir kjörmenn svo sem og skiptir ekki höfuðmáli en sigur samt fyrir Huckabee og McCain lítur ekki út fyrir að vera sigurvegari á meðan.
Staðfest lokaúrslit. Annars hélt ég að kjörmannafjöldinn ætti að vera 36 en ekki 33. Þarf að skoða það betur.
Rétt mun vera að Huckabee fær 36 kjörmenn en ekki 33.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.2.2008 | 18:57
Prófkjör og forvöl í dag, morgun og þriðjudag
Baráttan heldur áfram í dag í forsetaefniskosningunum í Bandaríkjunum. Demókratar eru með forval í Nebraska og Washington og prófkjör að auki í Louisiana. Þá er forval hjá þeim á morgun í Maine. Repbúblikanar eru með forval í Washington og Kansas og prófkjör í Louisiana líkt og Demókratar.
Washington er stærst af þessum ríkjum, gefur í kringum 100 kjörmenn hjá Demókrötum og er því eftir nokkru að slægjast. Líklegt má teljast að Clinton komi til með að vegna ágætlega í Washington og Maine, líklega vinna bæði ríki (Maine með stærri mun) en ef hún vinnur hvorugt er það slæmt fyrir áframhaldandi baráttu hennar.
Obama er talinn sterkur í Nebraska og Louisiana sem og Maryland og Virginiu sem hafa prófkjör á þriðjudaginn kemur en þá verður einnig ljóst varðandi val Demókrata erlendis. Það má skjóta því inn að meðal Demókrata í Indónesíu vann Obama með hátt í 80% fylgi.
Það lak út frá kosningabaráttu Obama hvernig reiknað er með að kosningarnar næstu daga fara og ljóst má telja að verði niðurstaða þeirra slakari fyrir hann er þar er lagt upp með fær hann að kenna á því í fjölmiðlum í framhaldinu og væntanlega talið sem tap fyrir hann.
Svo eru menn farnir að spá í "heartland" ríkin í byrjun mars, meðal annars Texas, sem gefur verulegan fjölda kjörmanna.
Ég fylgist með í kvöld og nótt og set eitthvað misgáfulegt inn þegar ég sé eitthvað áhugavert.
9.2.2008 | 13:26
Alllir veikir nema einn
Það koma flestir aðilar veikir út úr þessu máli nema Dagur B., misjafnlega veikir reyndar. Dagur er sterkur í málinu, Sjálfstæðisflokkurinn afar veikur og oddviti hans ekki boðlegur í umræðuna hvað þá áframhaldandi veru í starfi. Hvernig ætli Kjartan borgarfulltrúi sjálfstæðismanna komi út úr þessu eftir að hafa ætlað sér að lífga upp á eigin frama með því að bjóða mönnum uppá Vilhjálm aftur sem borgarstjóra?
Þetta er kannski ekki þetta stórmál sem allir vilja vera láta nema Vilhjálmur Þ.?
![]() |
REI - ætlar Sjálfstæðisflokkurinn ekki að axla ábyrgð? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.2.2008 | 20:57
Álver og skipulag
Álversframkvæmdir hafa verið nokkuð í umræðunni undanfarið þó sú umræða hafi horfið svolítið í skuggann vegna dómaraskipunar Árna Matt. og REI máls. Eitthvað hefur verið skrafað um Helguvík og svo auðvitað um Bakkaálver hér fyrir norðan.
Iðnaðar- og byggðamálaráðherra leit meira að segja við á Húsavík um daginn og hélt fund þar sem þetta mál var efst á baugi. Þá var að skilja að unnið yrði áfram að því máli af hans hálfu þó að ummæli hans í þeim efnum hafi verið loðin og teygjanleg eins og hans er von og vísa. (Koma í sokka færslan mín um Össur bíður birtingar).
Eftir fundinn var helst talað um að umhverfisráðherra væri einhver steytingarsteinn varðandi framkvæmdina. Þó er það svo samkvæmt mínum heimildum að umhverfisráðherra skrifaði undir svæðisskipulag háhitasvæða í Þingeyjarsýslum þann 16. janúar en það er auðvitað grunnur fyrir framkvæmdum á svæðinu til orkuöflunar fyrir álver á Bakka.
Þetta hefur farið frekar hljótt sem og mestöll umræða um vinnu við þetta skipulag.
8.2.2008 | 18:14
Staðan í forkosningunum
Hvers lags orðskrípi er annars "forkosningar"? Betra að hafa annað hugtak yfir þetta held ég.
Mér sýnist annars að mjög margir stjórnmálaskýrendur vestan hafs telji stöðu Obama betri en Clinton þessa stundina einhverra hluta vegna. Þessu er ég ósammála. Clinton tel ég vera betur setta en Obama. Hún varðist mjög sterka ásókn Obama í aðdraganda ofur þriðjudagsins, kom sem sagt betur út þar heldur en von var jafnvel á. Að auki virtist hægja svolítið á fylgisaukningu Obama og útgangskannanir virtust sýna að þeir sem ákváðu sig seinustu þrjá dagana fyrir kosningu kusu frekar Clinton.
Þá er Clinton mun sterkari en Obama meðal þess stóra hóps sem sjálfkjörnu fulltrúarnir eru en ég átti von á því að í kjölfar stuðningsyfirlýsingar Teddy Kennedy myndu mun fleiri slíkir fylkja sér að baki Obama. Það hefur ekki gerst ennþá svo neinu nemi.
Það er því mikilvæg kosning í fjórum ríkjum hjá Demókrötum um helgina. Ef Obama ætlar að ná forskoti verður honum að vegna ákaflega vel um helgina annars styrkist Clinton verulega.
Ég held því að helgin og reyndar næsti þriðjudagur komi til með að skýra málið nokkuð vel þó svo að það sé algjörlega ljóst að baráttan heldur áfram næstu vikurnar að minnsta kosti.
Annars er staðan í kjörmönnum talið (mínus sjálfkjörnir) samkvæmt RCP: Clinton 866 og Obama 877.
Annars lýsti ríkisstjóri Washington (Christine Gregoire) yfir stuðningi við Obama í dag og tekur þátt í kosningabaráttu hans í ríkinu í dag.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)