Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hvernig dettur mönnum í hug...

... að eyða góðum bita úr áhorfsmesta dægurmálaþætti landsins í nöldur út af bloggi. Mér er alveg sama þó að það hafi verið Össur sem skrifaði bloggið og tekið hafi verið duglega á Gísla Marteini, það þurfti sko ekki að velta sér upp úr því eins og gert var í kastljósi í vikunni.

Ég fer sko alveg að fara að fá nóg af Stöð 1 svei mér þá.

Eina góða þessa dagana hjá þeim er að hafa ráðið Snorra Sturluson aftur á íþróttadeildina. Ætli menn sjái almennt hvernig hann hefur breytt efnistökum þar svo um munar? Ég leyfi mér að benda á að nú er til dæmis komin umfjöllun um íslenska körfuboltann.

Ætli maður tjái sig svo nokkuð meira um Vilhjálm Þ.? Þar fer ekki maður sem ætlar að taka allra bestu ákvarðanir ársins held ég.


Obama Gets His Boogie On

Og takið sérstaklega eftir kveðjunni í lokin hjá honum. Vakti mikinn fögnuð á þessum stað.


Til hamingju með það

Það er alveg við hæfi að óska sjálfstæðismönnum í Reykjavík til hamingju með að það er komin niðurstaða í málið.

Þá er bara framundan öll vinnan við að sannfæra borgarbúa um að þetta sé rétt ákvörðun.

Ef það er hægt.


mbl.is Vilhjálmur ætlar að sitja áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Obama vinnur enn og McCain í vandræðum

Á meðan allt logar í kringum John McCain í dag vegna greinar í New York Times þar sem hann er sagður hafa átt í óviðeigandi sambandi við ungan "lobbyista" af hinu kyninu bætti Obama við sig nokkrum kjörmönnum. Ég veit ekki alveg hvort það var óviðeigandi að "lobbyistinn" var kona eða hvort það var bara að þetta var lobbyisti. En þetta er McCain svolítið snúið og tekur tíma hans frá öðrum fyrirliggjandi verkum.

En þá að aðalatriðinu. Í dag voru ljós úrslit í prófkjöri Demókrata búsettra erlendis en þeir eiga rétt á 22 kjörmönnum sem fara með 11 atkvæði á landsfundi Demókrata í haust. Þetta prófkjör vann Obama með 65% atkvæða á móti 32% Clinton. Því sýnist mér hann fá 14 kjörmenn þarna (7 atkvæði) og Clinton 8 (4 atkvæði). Ekki margir kjörmenn en það hefur nú verið barist yfir minna t.d. voru 20 kjörmenn í boði í forvalinu á Hawaii.

Það dró því aðeins í sundur með þeim í dag.


Molar síðan í gær

Hann kom aðeins á óvart þessi stóri sigur Obama á Clinton í Wisconsin í gær, 58%-41%. Skoðanakannanir höfðu vissulega gefið til kynna sigur Obama (allar nema þrjár) en mjög fáar þeirra yfir tíu prósenta sigur.

Útgöngukannanir sýna líka að Obama er að ná eða sigla framúr Clinton í stuðningi meðal þjóðfélagshópa sem hafa verið "hennar" fram að þessu. Þetta er þeir sem hafa lágar árstekjur (undir 50þús$ á ári), konur og þeir sem hafa litla eða enga menntun.

Ef Clinton nær ekki að breyta þessu mynstri er útséð um að hún verði forsetaefni Demókrata.

En getur verið að hún sé búin að sjá þetta og sé farin að huga að því að vera varaforsetaefni? Hún hringdi víst í gær til Obama til að óska honum til hamingju með sigurinn í Wisconsin, eitthvað sem maður átti ekki von á.

John McCain, sem er næsta örugglega forsetaefni Repúblikana, virðist álíta að Obama sé að ná takmarkinu hjá Demókrötum. Hann beindi öllum sínum spjótum að Obama í ræðu sinni í gær, sem reyndar hljómaði eins og ræða frá Clinton en hvað um það.

Getur það verið að úrslitin í Wisconsin hafi áhrif á úrslit í Texas og Ohio? Ég held það vegna mikils munar. Hefði munurinn verið lítill hefði þetta ekki skipt neinu máli og ef Clinton hefði unnið hefði landslagið verið allt annað. Síðan eru tvær vikur langur tími til að heyja kosningabaráttu og þegar Obama hefur svo langan tíma kemur honum til með að vegna betur en ekki.


Enn aukast vandræði Clinton

Enn aukast vandræði Hilary Clinton í forsetaefnisbaráttu hennar við Barack Obama. Nú virðist hún tapa fyrir honum í Wisconsin samkvæmt útgönguspám, spurningin hvað munurinn verður mikill og hvaða áhrif það hefur fyrir framhaldið.

Nú hreinlega verður Clinton að vinna í Ohio og Texas í byrjun mars.

Þá er fastlega reiknað með því að Obama vinni á Hawaii og eins að McCain vinni hjá Repúblikönum.


Húsnæðissparnaðarkerfi - vaxtabætur

Ég er ákaflega skeptískur á boðað húsnæðissparnaðarkerfi félagsmálaráðherra. Fór ekki illa fyrir síðasta þess lags kerfi, sparimerkjum eða einhverju álíku? Ég sé ekki að þetta leysi einhvern vanda ungs fólks við sín fyrstu húsnæðiskaup.

Það getur verið að grunnhugmyndin sé í lagi (veit það samt ekki alveg), viðbótarlífeyrissparnaðarkerfið er til dæmis mjög gott en þetta getur ekki fallið alveg eins og það.

Hins vegar finnst mér mun meiru skipta að skoða frekar vaxtabætur, bæði hámarksfjárhæð þeirra sem og skerðingarmörk vegna eignamyndunar.

Ríkisstjórn ræður ekki vaxtaákvörðunum, það gerir markaðurinn. Ríkisstjórn ræður ekki húsnæðisverði, það gerir markaðurinn einnig. En það sem ríkisstjórn getur gert er að létta undir með þeim sem borga vextina.

Það á að gera með því að hækka hámarksfjárhæð vaxtabótanna og draga úr skerðingu þeirra vegna eignamyndunar. Vextir eru til dæmis hærri í dag en fyrir fjórum árum og koma þar af leiðandi harðar niður á fólki í dag. Fólk þarf einnig að taka hærri lán í dag vegna hærra húsnæðisverðs. Þess vegna eiga vaxtabæturnar að vera hærri. Síðan vita auðvitað allir að fasteignamatið hefur hækkað umtalsvert, svo ekki sé minna sagt, seinustu ár og það rennir stoðum undir hærri vaxtabætur einnig.

 


Af hverju tekst þeim alltaf að klúðra talningu í kosningum?

Það muna margir eftir Florida í forsetakonsingunum og hvernig sú atkvæðatalning var. Í prófkjörsbaráttu vetrarins kom síðan upp tilvik hjá Repúblikönum þar sem hætt var að telja þegar 13% atkvæða voru ótalin.

Og það nýjasta eru vafasamar tölur í prófkjöri Demókrata í New York 5. febrúar. Samkvæmt óstaðfestum fyrstu tölum reka menn augun í eftirfarandi:

80 election districts among the city’s 6,106 where Mr. Obama supposedly did not receive even one vote, including cases where he ran a respectable race in a nearby district

En þetta hefur síðan verið að leiðréttast þegar farið hefur verið yfir talninguna aftur en það kemur til mað taka þónokkurn tíma áður en því verður fyllilega lokið:

In the Harlem district, for instance, where the primary night returns suggested a 141 to 0 sweep by Senator Hillary Rodham Clinton, the vote now stands at 261 to 136. In an even more heavily black district in Brooklyn — where the vote on primary night was recorded as 118 to 0 for Mrs. Clinton — she now barely leads, 118 to 116

Menn svona veigra sér við því að halda því fram að rangt sé haft við en það örlar á því að það sé látið í það skína. Stuðningsmenn Obama eygja í það minnsta kannski einum eða tveimur fleiri kjörmenn í New York þegar talningu verður loksins lokið og það getur skipt máli í þessari jöfnu baráttu sem nú er í gangi.

Þeir ættu kannski að hætta með kosningavélarnar sínar nú eða þá að þetta séu mannleg mistök.


Le système Poutine

Sá fyrri hluta þessarar heimildamyndar og ætli maður reyni ekki að sjá þann seinni líka. Sæmilegt efni svo sem.

En mig langar reyndar frekar að sjá svona gagnrýninn þátt á uppgang og störf George W. Bush núverandi Bandaríkjaforseta.

Ætli það sé hægt?


Var von á öðru?

Ætli það hafi verið von á öðru en öflugri áróðursherferð af hálfu Repúblikana gegn forsetaefni Demókrata? Ég held ekki.

Repúblikanar eiga nefnilega alveg heilu skjalasöfnin um það hvernig eigi að berja á Hilary Clinton ef hún verður forsetaefni Demókrata. Nú ef það verður Obama þá þurfa þeir að leggja í að endurvinna það og jafnvel bæta einhverju nýju við.

Annars dettur mér helst í hug að þetta sé tvöfalt í roðinu. Repúblikanar eru nefnilega hræddari eins og er við Obama en Clinton og þetta lítur því út fyrir að vera meira svona innlegg til hjálpar Clinton í Demókrataslagnum.


mbl.is Áróðursherferð gegn Obama í undirbúningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband