Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
5.9.2008 | 14:43
Nálgumst fjárlagagerðina öðruvísi
Nú er fjárlagagerð næsta árs langt komin að því að manni skilst og góður partur af haustþinginu á eftir að fara í lokafrágang og umræður.
Fjárlögin eru einna mikilvægasta lagasetning hvers árs, bæði hvað umfang varðar og áhrif og ég vil meina að vinnulagið við gerð þeirra sé orðið úrelt.
Það á að vinna fjárlög í víðtækara samráði en verið hefur gert og breyta síðan lagalegu umhverfi á þann hátt að aukinn þingmeirihluta þurfi til samþykktar þeim.
Á þennan hátt verður gerð fjárlaga ábyrgari og skilvirkari. Að auki held ég að hlutirnir verði meira uppi á borðinu almennt hlutir sem mega missa sín á fjárlögum falli út.
Nýir tímar kalla á breytt vinnulag.
4.9.2008 | 20:54
Hnífjafnt segir CBS
Í nýjustu könnun CBS eru Obama og McCain hnífjafnir, báðir með 42% en óákveðnir 12%. Könnunin er gerð mánudag til miðvikudags.
Þetta er í raun á skjön við aðrar kannanir síðustu daga en Gallup könnun sem gerð er á sama tíma segir forskot Obama vera 7%.
Annars er ekki fyllilega að marka þessar heildarkannanir finnst mér heldur verður að sjá fyrir sér hvert einstakt ríki. Þeim má skipta í þrjá flokka síðan: "solid, leaning og toss ups".
Þar hafa menn auðvitað mest gaman af því að spá í "toss ups" ríkin og hvað er að gerast í þeim. Eins er hægt að reikna með smá hasar í "leaning" ríkjunum.
Ef maður skoðar þetta í heild sinni eins og staðan er núna er Obama með tæplega 200 kjörmenn af þeim 270 sem til þarf en McCain með um 140.
En meira um þetta síðar.
2.9.2008 | 11:00
Ymislegt ad koma uppur kafinu vardandi val Palin
Manni dettur i hug "frekar thad versta en thad naestbesta" vardandi val McCain a Soruh Palin thegar madur les grein um ferlid i NYTimes i dag.
This was really kind of rushed at the end, because John didnt get what he wanted. He wanted to do Joe or Ridge.
Henni virdist hafa verid helypt i gegnum hid venjubundna "vetting process" og thess vegna seu ad koma alls konar mal til sogunnar nu.
Ein virdist McCain enga stjorn hafa a flokknum i held sinni vardandi val sitt og thvi hafi thetta ordid lendingin.
Republikanar sjalfir eru svo alveg a ondinni med ad thetta verdi notad thannig a McCain ad domgreind hans se ekki alveg i lagi, sjalfsagt fyrst og fremst vegna thess ad their halda thad sjalfir.
Thetta er farid ad lita verr ut en eg helt i fyrstu.
1.9.2008 | 21:07
Alltaf sama oftúlkunin á skoðanakönnunum
![]() |
Samfylkingin með mest fylgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.9.2008 | 17:52
Sumir draumar þurfa að víkja fyrir öðrum
"A Clintonite in Denver" heitir ágæt grein Howard Wolfson, yfirmanni almannatengsla hjá Hilary Clinton í prófkjörsbaráttu hennar en greinin bar birt í WP í dag.
Þar segir hann frá hvernig hann og líklega margir aðrir í baráttuliði Clintons, upplifðu prófkjörsbaráttuna og ekki síður eftirleik hennar.
Most of us never heard him speak in person. At work 14 hours a day in the war room, we focused on his perceived faults and deficiencies. Our time was spent sharpening and advancing arguments. Skepticism was critical to our efforts. Insulated from Obamamania, I met few Obama supporters and distanced myself from the ones I knew. I lived this way for 18 months.
Once we ran out of states and the campaign ended, we were like Rip Van Winkle. We awoke to a world transformed by political currents we had stood against. There was the neighbor in an Obama T-shirt getting the morning paper. Every parked car on the street bore an Obama bumper sticker. Had they been there along, or did they pop up overnight?
Og hvernig upplifði hann svo flokksþingið í Denver?
Then came Thursday night at Invesco Field. During the campaign, we scoffed at events like this, mostly because we were not capable of producing them. A cross section of voters waited for hours to enter the stadium and take their seats. As one friend put it, it looked more like an American convention than the convention of any particular political party
Sumir draumar þurfa hreinlega að víkja fyrir öðrum.
Progress in America is never cheap, and even today history exacts a price for Obama's victory -- the dreams of electing the first female president, the dreams of so many who rushed toward Hillary Clinton on rope lines across America and refused to give up her hand and their hopes. Today these dreams are giving way to another kind of progress
Auðvitað er þetta framlag hans til að sameina liðið að baki Obama en það er vel gert hjá honum verður að segjast.
31.8.2008 | 21:52
Palin hæfust af þeim sem til greina komu?
Val McCain á varaforsetaefni sínu hefur aftur sett Repúblikana í varnarstöðu eftir annars ágætan ágústmánuð.
Félagar hans í flokknum hafa átt erfitt með að svara fyrir valið og eintómir útúrsnúningar verið reyndir til að sleppa frá einföldum en áleitnum og beittum spurningum.
Aðalspurning dagsins hefur verið hvort Palin sé hæfasti Repúblikaninn af þeim sem til greina komu til að fara í þetta starf. Því hefur enginn Repúblikani getað svara hreint út og síðan hlaupið á milli þess að það sé bara spurningin um forsetaefnin og þess að allur pakkinn skipti máli.
Það sem þetta hefur einnig gert er að draga aldur McCain af fullum krafti inn í baráttuna og þar með hæfi Palin frá degi eitt.
Þetta val hans kemur kannsi til með að friða hægri væng flokksins en að það dragi í stríðum straumum kjósendur Clinton í forvali Demókrata til hans eða konur almennt eru hálgferðir draumórar.
Svo eru tálbeiturnar hans tvær ekki par sáttar með framvinduna.
Og ofafn í allt þetta kemur síðan Gustav.
29.8.2008 | 23:42
Var McCain fíflaður í þetta?
Ævintýralegur endir á vali McCain á varaforsetaefni sínu. Hún var reyndar komin í umræðuna en var einhvernveginn aldrei talin koma til greina enda telja fjölmiðlar valið koma á óvart og sé ákaflega áhættusamt.
En hvers vegna segi ég fíflaður? Jú þetta byrjar með einni síðu á netinu. Strákur sem leist ekki á þá sem nefndir voru til sögunnar og rannsakaði markaðinn á eigin spýtur og endaði með nafn Palin.
Þetta breiddist síðan út um netið en fór aldrei neitt sérstaklega hátt þannig séð en endaði svona. Það er í raun svolítið sniðugt að blogospherið hafi valið varaforsetaefni Repúblikana.
Það var sem sagt búið að keyra tiltölulega öfluga baráttu fyrir hana á netinu eins og youtube, facebook (hér líka) og myspace.
Adam Brickley heitir kappinn sem kom þessu af stað og síðan hans er alveg hreint út sagt mögnuð. Gríðarlega mikil vinna í henni, öflug heimildarvinna á öllum vígstöðvum.
Ég held að McCain ætti að fá hann í vinnu hjá sér fram yfir kosningar, það er öruggt að það myndi ekki skaða baráttuna fyrir honum. En aðdragandinn gerir mann hálf orðlausan.
Þrátt fyrir þetta held ég mig við það að þetta eigi eftir að koma í bakið á McCain.
29.8.2008 | 19:16
Þetta á eftir að koma í bakið á honum
Ferskt val á varaforsetaefni hjá McCain í dag. Kona alla leið frá Alaska (ég var einmitt að byrja á tölfræðivinnslu á Alaska í dag).
En þetta á eftir að koma í bakið á honum og falla í grýtta jörð meðal sumra. Að auki slær þetta nokkuð á hans eigin vopn en gefur ekki mikla möguleika á vinnslu til baka.
En hugsunin á bakvið þetta val er skýr þó að hún gangi ekki fyllilega upp.
29.8.2008 | 08:34
Breytt nálgun Obama
Mér fannst ræðan hjá Obama vera góð, eiginlega mjög góð. Ég er ánægður með hvernig hún slær örlítið öðruvísi tóna en áður.
Það er gefið meira kjöt á beinin en verið hefur. Það var svarað skýrar og fastar fyrir sig en verið hefur og það var lagt út frá því að færa hann nær fjöldanum ef svo mætti segja.
Auðvitað var ekki hjá því komist að tengja sig við söguna á 45 ára afmælisdegi hinnar frægu ræðu Martin Luther King en það var vel frá því komist. Þrátt fyrir að vera fyrsti blökkumaðurinn sem hlýtur útnefningu hjá öðrum stóra flokknum þá er hann annað og miklu meira en "bara" blökkumaður í forsetaframboði. Um leið stendur hann samt svo nærri réttindabaráttu blökkumanna, sem ekki sáu fyrir sér þennan möguleika þegar þeir voru í baráttu fyrir grundvallar mannréttindum. Og það er ekki svo langt síðan.
Annars er gaman að sjá hvernig tengsl og samanburður er alltaf ofarlega hjá Bandaríkjamönnum. Það er nefnilega svo að Obama og framboð hans eru borin saman við J F Kennedy og menn eru líka búnir að finna bein tengsl þar á milli. Einn ræðuskrifari Obama var nefnilega í sex ár í vinnu hjá ræðuskrifara Kenndy þegar sá síðarnefndi var að skrifa endurminningar sínar. Sá gamli, sem skrifaði útnefningaræðu Kennedy á sínum tíma var bara sáttur með ræðu Obama. Gaf henni A+ í einkunn meira að segja.
"McCain er ekki sama, hann bara veit ekki" er lína kvöldsins.
Héðan í frá verður spiluð sókn af hálfu Demókrata, á öllum vígstöðvum kosningabaráttunnar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.8.2008 | 21:20
Skrýtin frétt
Hún er hálf skrýtin fréttin á visir.is um brúarbyggingu Dana yfir Kattegat. Það er helst á fréttinni að skilja að brúin, sem hætt er við að byggja, ætti að vera yfir til Svíþjóðar.
Danir hafa lagt á hilluna áætlanir um að byggja brú yfir Kattegat, sundið á milli Danmerkur og Svíþjóðar.
Í dag ganga ferjur milli Fredrikshavn á Skagen og Gautaborgar í Austur-Svíþjóð. Einnig á milli Helsingjaeyrar í Danmörku og Helsingjaborgar í Svíþjóð.
Málið er bara að það er verið að tala um brú á milli Jótlands og Sjálands, aðallega til að stytta ferðatímann milli Árósa og Kaupmannahafnar að því að manni skilst (eða þannig hefur þetta verið sett upp en auðvitað styttist ferðatíminn milli norður Jótlands og Kaupmannahafnar í sama skrefinu).
Það er ekki bara verðið á brúnni sem menn setja fyrir sig, menn vilja sjá framar í forgangsröðinni lausnir á umferðarvandamálum í og við Kaupmannahöfn. Dýrasta útgáfan myndi kosta 2.200 milljarða en ef sú ódýrasta, sem kostar um 1.600 milljarða, yrði valin þá er talað um að úr ríkissjóði þyrfti að greiða helming en hinn helmingurinn kæmi í gegnum veggjald.
En íslenska útgáfan af þessari frétt er slök í meira lagi verður að segjast.