Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Fréttir eða ekki?

Mér finnst það skrýtið að fjölmiðlar telji það vera fyrirsagnarvert að Bill Clinton (og Hilary) styðji Obama. Það eru í sjálfu sér ekki fréttir að þau styðji hann.

Það sem eru aftur á móti fréttir er hvernig stuðningur þeirra við hann er framreiddur og það er fyrirsagnarvert.

Bill komst nefnilega vel frá sinni ræðu á flokksþinginu í gær með skýrum og nákvæmum stuðningsorðum þar sem Obama var mærður á réttan hátt fyrir komandi kosningabaráttu. Hilary var laus við það í fyrrakvöld. Samt vantaði einhvern neista hjá Bill, líkt og Hilary. Það er áhyggjuefni Demókrata.

Að skyggnast undir yfirborðið og skýra hlutina er betri fréttamennska flöt frásagnagleði hraðans án innihalds.


Þetta var eitthvað meira í áttina hjá Clinton

Það var nú fallega gert hjá Clinton að leggja það til að "Roll Call" yrði hætt og Obama yrði útnefndur með lófataki og látum.

En auðvitað var þetta ósköp venjulegt pólitískt leikrit, tilkomumikið en leikrit engu að síður.

Eitt stendur þó uppúr. Atriðið virðist við fyrstu sýn vera vel æft af báðum aðilum og það er það sem mestu máli skiptir.

Ég er búinn að fá smá bjartsýni til baka sem ég missti við ræðu Clinton í gær.


Vonbrigði

Ég varð fyrir gríðarlegum vonbrigðum með ræðu Hilary Clinton í gær. Ég hafði búist við svo miklu meiru af hennar hálfu við að sameina Demókrata að baki Obama fyrir kosningarnar í haust. Það var ekki endilega að það vantaði mikið uppá orðin í ræðunni heldur miklu frekar að það vantaði ákafann og einlægnina, að vilja virkilega komast yfir baráttu þeirra síðustu átján mánuði og horfa fram á við.

Ræða Clinton hefur aftur á móti fengið ágæta dóma vestan hafs og henni hrósað fyrir hvernig hún leggur sitt lóð á vogarskál sameiningar flokksmanna.

She did her part with a powerful address that cast the differences between herself and Barack Obama as minor when compared to what is at stake in the election. Clinton also scolded those among her supporters who insisted that they simply could not bring themselves to support the Illinois senator in the fall.

Clinton seemed at times more comfortable in her role as a surrogate than she did as a candidate; rather than selling herself to voters, Clinton was able to advocate for her ideas.

Whether or not Clinton's speech is the start of a broader movement by her supporters into Obama's camp, it's hard to imagine that the New York senator could have done much more for her colleague from Illinois than she did tonight.

Aftur á móti eru fréttaskýrendur utan Bandaríkjanna (nema Íslandi held ég) sem og nytimes frekar á því að eitthvað hafi vantað uppá hjá henni. Hún sneiddi algjörlega hjá því að styðja í raun við Obama, fyrir utan sjálfgefnar setningar um stuðning sinn við hann.

Og ofan á þetta allt saman, þegar flokkurinn þarf á því að halda að topparnir sýni gott fordæmi, þá verður Bill Clinton ekki viðstaddur útnefningarræðu Obama á fimmtudagskvöldið. Eitthvað sem er algjörlega óþarft fyrir hann að gera og gefur eingöngu andstæðingum skotfæri.

Ég er eiginlega hálf sorgmæddur á glötuðu tækifæri í kosningabaráttunni.

Ræða Michelle Obama var miklu betri.


Ummæli vikunnar

Ég held að ummæli vikunnar eigi fréttamaður CNN sjónvarpsstöðvarinnar eftir að þeir félagar Obama og Biden komu fram saman í fyrsta sinn í kosningabaráttunni.

Eftir ræður þeirra beggja var nefnilega niðurstaða fréttamannsins að þeir væru "eins og svart og hvítt".

Eiginlega ekki hægt að segja hlutina betur.


Miðarnir í haust!

Hvernig í fjandanum á maður annars að þýða þetta kosningahugtak frá Bandaríkjunum, "on the ticket"?

Það gaukaði að mér einn gárunginn vestan hafs að þetta væru svolítið sérstakir "miðar" í kosningunum í haust.

Obama/Biden væri hættulega líkt Osama Binladen en hinu megin væri "mormone and moron"

Já er það ekki bara.


Og Biden varð það!

Að Obama myndi velja Joe Biden var eitthvað sem var viðbúið en um leið samt ekki. Þess vegna var svona agalega mikill áhugi á málinu.

Einhverjir voru þó á því að áhuginn væri mestur hjá fjölmiðlunum en fólki almennt væri nokk sama um þetta, það fengi hvort eð er að vita þetta á endanum. Ég held að þetta sé ekki fjarri lagi, talaði við nokkra í  nótt sem voru á sama máli. Þeir voru að minnsta kosti orðnir pirraðir sumir fjölmiðlamennirnir að vera ekki komnir með þessar upplýsingar í gær, fannst þeir ekki vera starfi sínu vaxnir að ná ekki upplýsingunum frá Obama baráttunni.

Um leið fannst þeim það verulega "impressive" að upplýsingarnar um þetta væru ekki komnar til þeirra.

En það sem var skemmtilegast var að fylgjast með hvernig menn sveifluðust á milli þegar fréttir fóru af stað í gærkvöldi. "Það er þessi, nei það er þessi" og ein þrjú, fjögur nöfn voru uppi á borðum í fjölmiðlunum í einu með misgáfulega heimildamenn fyrir þeim. Þetta sveiflaði sér svo yfir í bloggheima og fékk sniðugar birtingarmyndir þar, bæði vestan hafs og heima á Íslandi líka þar sem maður sá pósta um þrjú nöfn á nokkrum klukkutímum.

Eiginlega algjör snilld.

En annars eru menn missáttir við þessa útnefningu, finnst þetta vera pínu afturför frá breytingaþemanu sem Obama hefur gert út á fram að þessu.

Mér finnst líka eins og hann sé að segja já við þeirri gagnrýni að hann sé ekki tilbúinn til að takast á við hlutina.

En svona eru hlutirnir bara. Biden, eins og aðrir kemur með jákvæða hluti inn í kosningabaráttuna sem og neikvæða, líkt og allir aðrir hefðu gert.


Af hverju þetta orðalag?

Af hverju kallar Bryndís Ísfold Framsóknarmenn smælingja?

Af hverju kalla UVG Framsóknarflokkinn helvítis Framsóknarflokkinn en Sjálfstæðisflokkinn bara íhaldið?

fáum útrás fyrir andúð okkar á íhaldinu og 
helvítis Framsóknarflokknum

Bara smá föstudagshugsanir um ekki neitt.


Sarkozy útskýrir Georgíumálið - Evrópusambandið stóð fyrir sínu

Í gær birtist grein í Le Figaro og Washington Post eftir Nicolas Sarkozy. Þar fer hann yfir aðkomu Frakka og Evrópusambandsins sem og SÞ að átökum Rússa og Georgíumanna.

Það varð að koma á vopnahléi segir hann.

My long conversations with Dmitry Medvedev and Vladimir Putin at the Kremlin during the day and with Mikheil Saakashvili in Tbilisi during the night finally made it possible to gain the two parties' agreement to a six-point plan to end the crisis

Og það tókst en það er ekki allt unnið með því, langt í frá.

This plan did not solve everything. It did not aim to. But it did get the parties to agree to the cease-fire.

Fyrsti punktur samkomulagsins var brotthvarf rússnenska hersins þangað sem þeir voru fyrir átökin.

This withdrawal has to be carried out without delay. For me, this point is not negotiable.

If this clause of the cease-fire agreement is not abided by rapidly and completely, I will be prompted to convene an extraordinary meeting of the European Council to decide about the consequences that should follow.

Þá er komið að því, Rússar hafa nefnilega dregið fæturna í að fylgja þessum punkti samkomulagsins. Neyðarfundur hjá NATO í gangi og svo þarf að vinna málið hjá SÞ.

En hvert er framhaldið?

We must also determine whether Russia's intervention was a one-time, brutal -- and excessive -- response, or whether it is ushering in a new hardening of Moscow's line toward its neighbors and toward the international community, which would inevitably have consequences for its relationship with the European Union.

Og lærdómurinn?

But there are lessons we can draw from this crisis. First, the European Union rose to the occasion. At the behest of the French presidency, Europe put itself on the front lines from the outset of hostilities to resolve this conflict -- the third on European soil since the fall of the Berlin Wall. Throughout the first phase of this latest crisis, Europe's commitment was decisive: It was the European Union, through France, that created a space for diplomacy by quickly proposing reasonable terms for a cease-fire and rendering the political cost of pursuing war exorbitant for both parties. If our efforts finally paid off, it is because Europe -- despite a few differences in tone -- did not limit itself to condemnation. By choosing action and negotiation over rhetoric and mere denunciation, Europe was able to reestablish a positive balance of strength with Russia and to be heard by that country. When the house is burning, the priority is to put out the fire. Europe can be proud of this success, which proves that it can do a lot when it is motivated by a strong political will.

Þessi grein er ágæt í sjálfu sér og ber auðvitað með sér nokkra eftirtektarverða punkta. Fyrst og fremst að Evrópusambandið sé nægilega öflugt til að takast á við vandamál af þessari stærðargráðu.

Svo er bara að sjá hvernig málin þróast.


Kannski hann sé bara rokkstjarna!

Það styttist í flokksþing Demókratanna í Denver. Þar mun Obama taka á móti tilnefningu sinni sem forsetaframbjóðandi flokksins.

Mikið húllumhæ og, eins og rokkstjörnu og "celebrity" sæmir þá er hann með "backstage pass".

As you may have heard, 10 supporters will be joining me backstage before I accept the nomination at the Democratic National Convention in Denver.

They each bring their own unique perspectives and experience, and they are united by their hunger for change.

Tíu gallharði stuðningsmenn hans, vel valdir að teknu tilliti til allra þátta, fá að vera baksviðs með forsetaframbjóðandanum á þessum roknaviðburði. Af fyrsta yfirlestri um fólkið og bakgrunn þess þá er þetta sniðugt.

Ég var ekki valinn. En get samt verið á ráðstefnunni en held ég hafi ekki efni á því. Get samt alltaf haldið áhorfspartý samt hjá mér.

Svo styttist í varaforsetavalið auðvitað, spái því að tilkynnt verði um það á sunnudag.


Er þetta nokkuð að fara fram hjá fólki?

Það er verið að ráða sveitarstjóra hjá Þingeyjarsveit. Allt í lagi, ég veit að það jafnast engan veginn á við borgarstjóraskipti í Reykjavík en þessir litlu mega nú ekki alveg gleymast.

Ganga á til samninga við Tryggva Harðarson og ef mér skjátlast ekki var hann á sínum tíma bæjarstjórí á Seyðisfirði og því hokinn reynslu eins og sagt er.

En er að bresta á flótti hjá starfsmönnum bankageirans? Ég tók nefnilega sérstaklega eftir að tveir af tólf umsækjendum um stöðuna eru úr þeim geira. Það hef ég ekki séð áður.

Annars líst mér ágætlega á þetta en um leið óska ég fráfarandi sveitarstjóra, Sigbirnni Gunnarssyni, velfarnaðar í sinni baráttu sem framundan er.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband