Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
2.10.2008 | 21:57
Kjarngóð íslenska
Djöfull er það eitthvað agalega fúlt og svekkjandi að sá eini sem virðist vera með blóð í hausnum og einhverju getur hreyft í efnahagslífinu er seðlabankastjórinn.
Eins og þau virðast nú líka hafa verið gæfulega gerð, stórvirkin hans síðustu vikuna. Algjörlega lömuð ríkisstjórn sem er undir hælnum á manni sem hætti fyrir löngu í stjórnmálum en spilar samt aðalrulluna í dag.
Segir manni bara að þeir sem eru stjórnendurnir í dag eru algjörlega vanhæfir til að takast á við hlutina. Þegar blæs í móti sína menn hvað í þeim býr.
Það er þó smá séns að grafa sig bara í fönn í þessum nýfallna snjó.
2.10.2008 | 20:27
Mörg orð ...
... um nákvæmlega ekki neitt.
Svona fer þegar menn þykjast vera karlar í krapinu en eru bara snáðar í snjónum.
![]() |
Glitnisaðgerð ekki endapunktur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.9.2008 | 21:08
Nokkuð til í þessu
The Obama Administration began at midnight Sunday.
Even if Sen. Barack Obama loses the presidential election and of course he may the playing field of our politics now has shifted seismically in his philosophical direction.
The era of cowboy capitalism has died, largely of self-inflicted wounds. Who knows whats coming now? I do: A new era of tight business regulation and government intervention in the markets.
For now, and perhaps for many years, there will be no going back.
24.9.2008 | 21:21
Playing politics á fjármálakrísuna
Það er ekki nema von að McCain vilji fresta kosningabaráttu og kappræðum vegna fjármálakrísunnar í landinu. Hún er nefnilega að ganga frá honum í fylgislegu tilliti.
Annars er þetta skringileg framsetning hjá McCain á þessu öllu saman. Obama stingur uppá því að senda út sameiginlega yfirlýsingu um þau grundvallaratriði sem þeir báðir fallast á að séu í björgunarfrumvarpinu og McCain er til í það. Síðan drífur hann sig í sjónvarpið til að skora á Obama að fresta allri baráttu eins og hann sjálfur og að þeir séu að vinna að sameiginlegri yfirlýsingu.
Það er ekki nema von að "playing politics" komi fyrst upp í huga fréttamanna vestra.
Annars voru Danir með réttu fyrirsögnina á Palin í dag. "Palin i praktik" en nú er verið að máta hana inn í utanríkisreynslu með því að láta hana hitta fjöldann allan af þjóðhöfðingjum á ákaflega stuttum tíma. Þá hljóta kjósendur að sjá hvað hún hefur mikið um utanríkismálin að segja og hvað hún taki sig vel út í ljósmyndastillingunni við slík tækifæri. En hún verður auðvitað orðin vel sigld eftir þessa törn þó hún hafi bara verið með vegabréf í eitt ár.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2008 | 09:46
Peningum kastað á glæ
"Virkjum alla - rafrænt samfélag" er sjálfsagt eitthvað sem er öllum fallið í gleymskunnar dá. Samt var kastað í þetta verkefni ótæpilegum fjármunum, bæði af ríki og þeim sveitarfélögum sem voru svo "heppin" að veljast til þátttöku í verkefninu.
Síðustu fréttir af verkefninu eru síðan í febrúar 2007.
Hefði ekki verið nær að ganga frekar fyrst í það verkefni að allir íbúar hefðu þó aðstæður til að taka þátt í svona löguðu með því að hafa boðleg tenginamál við netið í lagi?
Og sveitarfélagið sem ætlaði að "virkja alla" dregst bara afturúr. Fundargerðir sveitarstjórnar voru þó yfirleitt komnar á netið samdægurs hér fyrr í ár. Nú er því ekki að heilsa heldur þarf að bíða dögum saman eftir þeim.
Mér er nær að kalla þetta falda stjórnsýslu frekar en opna stjórnsýslu sem þó ætti að vera markmiðið í nútíma samtíma þjóðfélagi.
Þar fyrir utna finnst mér að fundir sveitarstjórnar eigi að vera opnir öllum til að fylgjast með, í orði en ekki bara á borði. Því finnst mér að Þingeyjarsveit eigi að senda fundi sína beint út á netinu, það er fyrsta skrefið í opinni stjórnsýslu og einnig fyrsta alvöru skrefið að rafrænu samfélagi.
Heimasíða Þingeyjarsveitar er annars hvorki fugl né fiskur. Fjórar fréttir í september og mjög mikið magn upplýsinga sem eru óuppfærðar og úr sér gengnar.
Svo mikið fyrir framsýni í upplýsingatækni.
18.9.2008 | 20:43
Fallegar umbúðir er ekki nóg
Það er ekki nóg að hafa fallegar umbúðir til að bjarga rotnu innihaldi. Nú er "bouncið" búið hjá McCain og félögum.
Grimmt andlit raunveruleikans blasir nú við og meðvindurinn farinn veg allrar veraldar.
Spurning hvaða ráðum verður þá beitt?
12.9.2008 | 19:44
Meira ad segja Bush er hættur ad halda thessu fram!
En ekki Sarah Palin. Ellefti september og Irak, nei fjandinn hafi thad.
The idea that the Iraqi government under Saddam Hussein helped al-Qaeda plan the attacks on the World Trade Center and the Pentagon, a view once promoted by Bush administration officials, has since been rejected even by the president himself
Annars var Palin i tomum vandrædum um utanrikismalin i sinu fyrsta vidtali eftir varaforsetaefnisutnefninguna.
Strid vid Russa?
"Perhaps so."
Tha vitnar madur nu bara i Jon Spæjo. Kalt hitaveituvatnid hrislast nidur bakid a mer!
12.9.2008 | 09:34
Hver er skilgreiningin a kreppu?
Ætli skilgreiningin hja Samfylkingunni se ekki su ad vera ekki i rikisstjorn.
Midad vid thad sem haft var eftir formanninum i Frettabladinu gæti madur haldid thad.
10.9.2008 | 18:34
Góð tíð fyrir skoðanakannanörd
Það er af nógu að taka varðandi skoðanakannanir í BNA þessa dagana (sem og reyndar allt sumar) og alveg hægt að gleyma sér í að skoða þær í öllum sínum fjölda.
En akkúrat í dag eru tvö atriði sem standa uppúr varðandi kannanir finnst mér.
Í fyrsta lagi er það spurningin hvert framhaldið verður nú hjá McCain eftir gott "bounce" frá flokksþinginu, sem hefur að sumu leyti sett Demókrata á afturfæturna. Verður þetta stökkpallur eða fjarar "bounceið" út á næstu tveimur vikum?
Hitt er svo annað að það er eiginlega mun skemmtilegra að skoða hvert ríki fyrir sig heldur en landskannanir þó svo þær sýni ýmislegt. Mér finnst það gefa betri mynd að skoða hvert ríki og þá hvernig línan breytist í þeim. Kjörmannafjöldinn fer nefnilega eftir ríkjum (nær öll þeirra eru "winner takes all") og það skiptir ekki öllu máli hvort menn bæta við sig í öruggu ríki eða ekki (svo lengi sem það er öruggt). Þar eru ekki miklar breytingar hvort sem er en það eru "toss up" ríkin sem skipta miklu máli og ríkið til að fylgjast með þar er Ohio.
Ohio er nefnilega með skemmtilega tölfræði á bakvið sig. Síðustu áratugina hafa Republikanar ekki unnið forsetaembættið án þess að vinna Ohio en það hafa Demókratar þó gert tvisvar. Samikvæmt því sem kannanir benda til í dag þarf svo Obama að gera það svo í þriðja sinn nú því McCain er með stöðuga forystu í Ohio. Obama er hins vegar með áætlun í gangi sem miðar einmitt að því að geta unnið í haust án þess að vinna í Ohio.
En staðan í dag samkvæmt ríkjakönnunum (sem eru reyndar misnýjar) er 217-189 fyrir Obama og reyndar lítur þokkalega út fyrir hann í Pennsylvaniu eða svipað og hjá McCain í Ohio.