Ég vil ...

... jafnrétti. En hvað er jafnrétti og hversu langt á að ganga til að ná jafnrétti fram? Mest hefur þetta hugtak verið í umfjöllun varðandi kynin hér á landi undanfarið en í mínum augum er þetta mun víðtækara en svo að það eigi að einskorðast við það.

Þetta er spurning dagsins hjá mér og væntanlega skilar það sér í pistli seinna meir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Sammála þér.  Við höfum að öllu jöfnu of mikla "rörsýn" á jafnrétti kynjanna.  Hvað með jafnan búseturétt og jafnan rétt almennt m.v. aldur?  Bara svona sem dæmi.  Hlakka til að lesa pistilinn.

Vilborg Traustadóttir, 19.3.2007 kl. 10:17

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Fullkomnu jafnrétti veður eflaust aldrei hægt að ná.  En það er hægt að stefna að sem mestum jöfnuði meðal allra í víðtækasta skilningi þess orðs. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.3.2007 kl. 10:44

3 Smámynd: Kolgrima

Það er hreint og beint undarlegt að það skuli þurfa að berjast fyrir jafnrétti kynjanna!

Kolgrima, 19.3.2007 kl. 17:02

4 Smámynd: Hannes Bjarnason

Jafnrétti felst í því að veita þjóðfélagsþegnum sömu valmöguleika í lífi sínu, hvar sem þeir búa, hvað sem þeir heita og af hvaða kyni sem þeir kunna að vera.

Það er svo allt annað mál hvort fólk nýtir sér þessa sjálfsögðu valmöguleika. Það er hlýtur að vera og á að vera val hvers einstaklings.

Hannes

Hannes Bjarnason, 19.3.2007 kl. 18:37

5 Smámynd: Ragnar Bjarnason

Takk fyrir innleggin, þetta er í vinnslu.

Ragnar Bjarnason, 19.3.2007 kl. 19:29

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Jafnrétti eru mannréttindi í víðtækasta skilningi þess orðs því konur eru líka menn.

Svava frá Strandbergi , 20.3.2007 kl. 01:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband