Obama vinnur í Norður-Karólínu

Það kemur ekki á óvart að Obama sé sigurvegari í Norður-Karólínu eins og búið er að lýsa hann nú þegar um leið og kjörstöðum þar var lokað.

Allt útlit er síðan fyrir sigur Clinton í Indiana, spurningin bara hversu stór. Ég reikna reyndar með því að hann verði stærri en margur heldur, um eða yfir 10%.

Það breytir samt litlu. Þetta er á þann veg sem reiknað var með en ég held samt ennþá að Clinton hætti baráttu sinni í framhaldinu. Þetta er orðið of fast í járnum og hún er með tapstöðu eins og er og verður að taka af skarið í framhaldinu.

Of mikið er farið að bera á harðri andstöðu og hreinlega hatri frá stuðningsmönnum annars þeirra út í hitt til að hægt sé að fara mikið lengra án þess að eiga það á hættu að tapa kosningunum í haust.

En annað eins hefur svo sem gerst, það er ekki það.


Clinton með yfirhöndina í Indiana

Miðað við fyrstu tölur í prófkjörinu í Indiana og útgönguspár dagsins virðist Clinton fylgja eftir skoðanakönnunum síðustu daga og vinna sigur í Indiana. Fyrstu tölur sýna hana með 60-40 forskot en spár segja sigurinn minni, eða innan við tíu prósent.

Gríðarleg kjörsókn virðist þó geta sett sitt mark á úrslitin og lift Clinton hærra og jafnvel yfir 10% mun sem er eiginlega það sem hún þarf á að halda í Indiana.

Þá er það ljóst að mál Obama varðandi Wright er algjörlega að standa í vegi hans þar sem hann náði einfaldlega ekki að klára það mál frá.

Voters from both states were spilt over the controversy surrounding Obama's former pastor, the Rev. Jeremiah Wright, early exit polls suggest.

In Indiana, 49 percent of voters in the Democratic primary said the issue was not important, compared to 48 percent who said it was an important factor in their vote

Bagalegt þegar um helmingur kjósenda lætur svona mál segja til um kosningu en svona er þetta.

Ef ef svo færi að Clinton ynni 10-15% sigur í Indiana og ynni einnig sigur í Norður-Karólínu þá eru henni allir vegir færir þrátt fyrir það sem ég hef áður sagt.


Fánanælan og Obama enn í umræðunni

Það eru prófkjör í dag hjá Demókrötum og Repúblikönum en kosið er í Indiana og Norður-Karólínu. Ég reikna fastlega með að þau Obama og Clinton vinni sitthvort ríkið og standi eins í framhaldi þess. Þó ætla ég einnig að spá því að Clinton hætti baráttu sinni í framhaldinu, einn spjallvinur minn vestan hafs vildi meina það og gaf sína útfærslu af því.

En það sem var kemur stundum aftur. Út í gegnum kosningabaráttuna og eiginlega síðustu misseri hefur Obama verið spurður út í fánanæluleysi sitt í jakkaboðungi. Þá hefur verið reynt að gera hann tortryggilegan í framhaldi þess.

Enn er umfjöllun um þetta í WP í dag og hún er ágæt. Segir að menn geti fylgt sínu nefi þó svo að það geti þýtt atkvæðamissi.

Many people will read a lot of meaning into Obama's refusal to wear the pin. Some will see it as a lack of patriotism, an emotional distance from the country that has served him so well. Others, such as I, will see it as an expression of cool, the statement of a candidate who wants to be president but not at the cost of his intellectual integrity. And still others (me again) will see it as Obama's push-back, his reluctance to do something simply because it is demanded of him

Þetta finnst mér segja kjarnann í málinu sem er samt svo mikið smámál að maður áttar sig stundum ekki á því hvað það er lífseigt og athyglissækið.

En prófkjörsúrslit eru framundan og það er áhugavert.


Naumur sigur Obama

Það var eitt forval hjá Demókrötum í dag, þannig séð. Á Guam, yfirráðasvæði Bandaríkjanna var kosið um fjóra fulltrúa á landsfund Demókrata í haust. Obama vann í 14 kjördæmum af 21 en í raun var vann hann í heildina með einum 7 atkvæðum.

Niðurstaðan er því sú að Obama fær tvo af þessum fjórum fulltrúum og Clinton tvo.

Þetta er mun naumari sigur en reiknað var með í herbúðum Obama en hefur líklega engin áhrif á prófkjörin sem eru á þriðjudaginn kemur í Norður-Karólínu og Indiana. Samkvæmt könnunum hefur Obama forskot í Norður-Karólínu en Clinton í Indiana en Norður-Karólínuríki hefur 115 fulltrúa og Indiana 72 fulltrúa.


Ein hliðin á Kína-Tíbet málinu

Það er hægt að finna broslegar hliðar á nánast öllum hlutum og svo er eins farið með Kína-Tíbet málið.

Það er nefnilega þannig að Tíbetski fáninn, Snow Lion Flag, hefur verið framleiddur í verksmiðju í Kína undanfarið og sendur þaðan erlendis í einhverjum skömmtum unadanfarið. Eftirspurnin hefur auðvitað verið gríðarleg undanfarið vegna allra mótmælanna sem verið hafa vegna málsins.

The factory owner reportedly told police the emblems had been ordered from outside China, and he did not know that they stood for an independent Tibet.

Workers who had grown suspicious checked the meaning of the flag by going online.

Thousands of flags had already been packed for shipping

Alvöru mál auðvitað eins og svo margt annað, drottnun Kínverja yfir Tíbet sem hefur auðvitað komist í hámæli vegna Olympíuleikanna í sumar, því betur.

En þetta er önnur hlið og eins og fyrirsögnin sagði

Það held ég.


Bók dagsins

Svona fyrst maður er að fylgjast með stjórnmálunum annars staðar í heiminum en á Íslandi, þar á meðal forsetaslagnum í Bandaríkjunum, þá er ekki vitlaust að fá sér eitt eintak þessari bók hér.

"The Revolution: A Manifesto" hvorki meira né minna eftir Ron Paul.


Vandamál Landspítalans

Úr fjarlægð virðist manni sem hin stóru og miklu vandamál, sem þau sannarlega eru, Landspítalans séu  í rauninni grundvallarmistök í breytingastjórnun.

Það að breyta til á staðföstum vinnustað er meira en segja það. Til að slíkt gangi vel þarf að fara í hlutina þannig að ekki fari allt í hnút, sem reyndar virðist alltaf gera þegar breyta á til þarna.

En svo er hitt að maður áttar sig ekki alveg á því hvað á að gera og hvers vegna. Mér finnst maður eiga alveg rétt á því að fá svolítið góða fréttaskýringu á þessu máli því það er nú ekki svo lítið. Tilraun til slíkrar skýringar í síðdegisútvarpi RÚV tókst ekki þannig að ég lýsi eftir einni slíkri fréttaskýringu takk fyrir.


Lykilorðið í þessu er afgerandi

Það er einmitt það sem skiptir mestu máli í þessum úrslitum að það eru afgerandi niðurstöður sem fram koma og skýr vilji.

Ég er ánægður með þessa niðurstöðu og hún er meira afgerandi en ég bjóst við fyrirfram. Það er því ánægjuleg niðurstaða hve afgerandi hún er.

Nú tekur við tæknileg útfærsla sameiningarinnar í byrjun og síðan í framhaldi af því stefnumörkun fyrir sveitarfélagið fyrir næstu misseri.

Það er reyndar eitthvað sem ég missi af og fylgist einungis með í fjarlægð, sem eru viðbrigði að vissu leyti og ofurlítið svekkjandi því ég hefði viljað taka fullan þátt í því.


mbl.is Aðaldælahreppur og Þingeyjarsveit sameinast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sameining samþykkt

Sameining sveitarfélaganna Þingeyjarsveitar og Aðaldælahrepps, sem kosið var um í dag var samþykkt í báðum sveitarfélögunum.

Í Þingeyjarsveit kusu 446 af þeim 515 sem voru á kjörskrá. Sameininguna samþykktu 257 eða 57,6% en 184 höfnuðu sameiningunni sem eru 41,4% þeirra sem kusu í dag.

Í Aðaldælahreppi kusu 137 af 199 sem voru á kjörskrá. Af þeim samþykktu 94 sameiningartillöguna eða 68,6% en 40 höfnuðu henni sem eru 29,2%.

Afgerandi úrslit segir oddviti Þingeyjarsveitar, Erlingur Teitsson og er ánægður með úrslitin í dag. Þetta er spor fram veginn sem verður vonandi til góðs.

Kjörsókn var góð í Þingeyjarsveit eða 86,6% en slakari í Aðaldælahreppi eða 68,8%.

Þessi tvö sveitarfélög, sem saman eru með hátt í 1000 íbúa, munu því sameinast í sumar komandi en stefnt er að því að kjósa nýja sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags á fyrirhuguðum kjördegi til forsetakosninga verði af þeim í júní næstkomandi.

Meira síðar.


Þátttaka í lýðræðinu og vandamál íslenska handboltans

Ég eyddi deginum í að dæma handbolta á Húsavík og sá þar kristallast vandamál íslenska handboltans í dag. Dæmdi fyrst nokkra leiki í Húsavíkurmótinu og svo einn leik í utandeildinni.

Síðan var virk þátttaka í lýðræðinu þar sem ég fór á kjörstað og kaus í sameiningarkosningum Þingeyjarsveitar við Aðaldælahrepp. Set inn úrslitin hér á eftir og kannski smá umfjöllun um þau þegar þau verða ljós. Kjörsóknin var orðin eitthvað yfir 90% í Þingeyjarsveit korter í sex þegar ég kaus og því vel yfir því sem menn bjuggust við og meiri en þegar síðast var kosið um sameiningu í haust.

Þetta var því hinn ágætasti dagur og áhyggjulaus miðað við tvo þá síðustu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband