28.4.2008 | 22:25
Vandamál Landspítalans
Úr fjarlægð virðist manni sem hin stóru og miklu vandamál, sem þau sannarlega eru, Landspítalans séu í rauninni grundvallarmistök í breytingastjórnun.
Það að breyta til á staðföstum vinnustað er meira en segja það. Til að slíkt gangi vel þarf að fara í hlutina þannig að ekki fari allt í hnút, sem reyndar virðist alltaf gera þegar breyta á til þarna.
En svo er hitt að maður áttar sig ekki alveg á því hvað á að gera og hvers vegna. Mér finnst maður eiga alveg rétt á því að fá svolítið góða fréttaskýringu á þessu máli því það er nú ekki svo lítið. Tilraun til slíkrar skýringar í síðdegisútvarpi RÚV tókst ekki þannig að ég lýsi eftir einni slíkri fréttaskýringu takk fyrir.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Tek undir þetta, málið hlýtur að snerta hvern einasta mann í þjóðfélaginu, eðli málsins samkvæmt. Hátæknisjúkrahús hvað ?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2008 kl. 11:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.