Eldfimt ástand

Þetta er verulega eldfimt ástand eins og það er núna. Menn verða að standa upp úr meðalmennskunni þarna og leysa þetta einstaka mál í byrjun og síðan auðvitað heildarmálin á svæðinu á raunhæfan og skynsaman hátt. Við megum ekki við því að hlutirnir fari úr böndunum.

Það held ég.


mbl.is Bretar svara Írönum vegna handtöku bresku sjóliðanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þarna ætti að gilda vægir sá sem vitið hefur meira.  Ég held að Íranar séru að storka vesturveldunum með þessu. Ögra þeim út í eitthvert gönuhlaup.  Bretar eiga bara að biðjast afsökunar og falast eftir að fá fangana til baka.  Þeir væru ekkert minni menn fyrir vikið.  En það er alltaf þessi stórbokkaskapur í ráðamönnum, og þá á kostnað fórnarlambanna.  Það er mín skoðun.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.3.2007 kl. 12:16

2 Smámynd: Björn Heiðdal

Það gætir ákveðinar hugsanarvillu hjá mörgum i málefnum Írans, Íraks o.fl.  Ástandið á svæðinu er ekki klúður heldur nákvæmlega eins og að var stefnt.  Bush, Halldór Ásgrímsson, Björn Bjarnason, Davíð Oddsson, Tony Blair og aðrir vopnabræður vilja stríð og fjöldamorð.  Enda hafa þessir kallar sagt að betra sé að ljótu hryðjuverkamennirnir séu í Írak að sprengja allt í loft upp heldur en heima hjá þeim.

USA hafa markvisst kynnt undir ástandinu t.d. með því að banna alla lækna, lögreglumenn, lögfræðinga, kennara, skólastjóra, forstjóra o.s.fr. sem áður höfðu unnið fyrir Saddam Hussein.  Heldur fólk virkilega að orsök og afleiðing séu tveir óskyldir hlutir?

Íran var t.d. í þessu tilviki að svara fyrir ólöglear handtökur og mannrán á Írönum.  Svo má ekki halda að breskir hermenn séu fórnarlömb stríðs sem þeir byrjuðu sjálfir á.  Írak+Íran+Sýrland+Afganistan=gaman gaman.

Björn Heiðdal, 31.3.2007 kl. 14:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband