Metnaðarfullt

Jæja, þá er komið fram a.m.k. vinnuheiti á nýja flokknum hennar Margrétar Sverris. og Ómars. Nafnið sem notað er í vinnuheiti finnst mér vera þónokkuð metnaðarfullt í það minnsta. Ég hefði frekar hugsað mér eitthvað kannski aðeins lágstemmdara og mér heyrist það einnig vera raunin á flestum í kringum mig sem maður heyrir í.  Annars datt Anitu í hug nafnið "Glænýtt afl" þegar ég var að segja henni frá þessu. Hún ætti kannski að láta það berast til þeirra.

Ef það eru almenn viðbrögð þá er kannski aldrei að vita nema vinnuheitinu verði breytt þegar fram í sækir. Það er reyndar ekki að verða mikill tími til stefnu.

Maður er bara orðinn spenntur að sjá hvernig stefnuskráin kemur til með að líta út svona í fullri lengd.

Það held ég.


mbl.is Íslandsflokkurinn vinnuheiti á áformuðu þingframboði Margrétar Sverrisdóttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband