12.5.2007 | 21:03
Myndir úr Færeyjaferð I
Hér eru nokkrar myndir úr Færeyjaferðinni.
Þessi hérna til vinstri er úr Þórshöfn, rétt við hliðina á verslunarmiðstöð þeirra, SMS. Mjög skemmtileg finnst mér (og sjálfsagt engum öðrum). Kindur á beit og kofi rétt þarna til hægri sem lendir utan myndar.
Þeir kynda að mestu leyti með olíu. Hérna er hitarinn í nýlegu húsi.
Og svo er ein hérna af súkkulaðigrísnum henni Eyhildi. Þetta var velheppnuð ferð að hennar mati.
Hérna er svo Salbjörg. Hún fékk peningagjafir hér og þar og fékk að velja sér leikföng til að kaupa fyrir. Ákvað að fá sér leikbolta, áttu að vera hundrað í pokanum en voru bara níutíu og níu. Pínu snuðuð af frændum sínum Færeyingum sú stutta.
12.5.2007 | 15:23
Kjörsókn
Kjörsókn í Þingeyjarsveit um klukkan tvö í dag var orðin í kringum 33% sem er svona þokkalegt. Reyndar var mikil umferð á kjörstaðinn einmitt þá og því hefur þessi hlutfallstala hækkað nokkuð síðustu klukkustundina.
![]() |
Þokkaleg kjörsókn í Norðaustur-, Norðvestur- og Suðurkjördæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.5.2007 | 12:49
Hátíðardagur
Ég er nú svo gamaldags eða hvað má kalla það, að kosningadagur er hátíðardagur hjá mér. Þó ekki væri nema fyrir það að við erum þó þannig stödd að geta kosið frjálst og tekið þannig ákvörðun á okkar forsendum í samræmi við það sem við sjálf teljum vera fyrir bestu. Það búa ekki allir svo vel svo ekki sé meira sagt.
Annars var hann athyglisverður, kosningaleiðari Morgunblaðsins í dag en þó sjálfsagt allir hafi skoðun á honum og mjög líklega mismunandi þá held ég að allir geti verið sammála um lokasetningu hans.
En hver svo sem niðurstaðan verður
er eitt ljóst; það deilir enginn við
þann dómara um niðurstöðuna.
Það held ég.
12.5.2007 | 00:06
Málshátturinn
"Sanngirni er sátta móðir"
Þetta er einn af þeim betri og getur átt víða við.
11.5.2007 | 17:06
Auðvitað
![]() |
Rukkað fyrir ógild atkvæði í Eurovision |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.5.2007 | 20:43
Segðu það með blómum
Ég frétti af Jóhönnu Sigurðar í múlunum í Reykjavík í dag þar sem hún gekk í hús og gaf rauðar rósir svona í tilefni kosninganna á laugardaginn. Fallega gert hjá henni, blóm hafa alltaf virkað vel til gjafa, spurning hvort það virki til atkvæðaveiða samt.
10.5.2007 | 14:42
Klaufar
Í allri þessari jafnréttisumræðu þá gleyma félagarnir sér aðeins og klikka á svona. Ég verð að vera sammála Guðnýu og telja þetta vera hallærislegt annars er það ágætt sem eftir henni er haft í þessari frétt.
![]() |
Bændakonur ekki ánægðar með bréf Einars Odds og Guðjóns Arnars |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.5.2007 | 12:05
Síðasti spretturinn II
Það verður spennandi að sjá hvað frambjóðendur og fylgifiskar hafa fram að færa þessa seinustu tvo daga kosningabaráttunnar. Svo virðist sem nokkuð stór hópur kjósenda geri ekki upp hug sinn endanlega fyrr en þessa seinustu tvo daga svo það er eftir nokkru að slægjast en stóra spurningin er auðvitað hvernig á að ná árangri í þvi.
Sjálfur er ég temmilega bjartsýnn á gengi okkar, svona miðað við efni og aðstæður. Á brattann hefur verið að sækja en þó gengur ágætlega að ræða málin. Tregðulögmálið virðist segja svolítið til sín á endasprettinum og hlutirnir þá sækja í átt að því sem áður hefur verið enda verður að segjast að það er fátt um raunveruleg og stór kosningamál að ræða núna. Sagði ekki Egill Helga að allir flokkar væru Framsóknarflokkar fyrir þessar kosningar.
Þrátt fyrir þetta má alltaf deila um keisarans skegg og láta minna fara fyrir því raunverulega og þó að vel sé gert má alltaf gera betur.
10.5.2007 | 10:48
Síðasti spretturinn
Nú erum við á seinustu metrunum í kosningabaráttunni og kannski því betur að sjást fyrir endann á þessu öllu saman. Kosningabaráttan í aðdraganda þessara kosninga hefur dregið dám af tíðum og misvel útfærðum skoðanakönnunum og hefur sú rödd orðið háværari að banna þær í vissan tíma fyrir sjálfar kosningarnar. Það er í sjálfu sér góð og gild skoðun að vilja banna skoðanakannanirnar vissan tíma fyrir sjálfar kosningarnar og hef ég heyrt fleiri og fleiri en ég sjálfur tel hins vegar að inn í þetta ferli spili vald fjölmiðlanna á þann hátt að þeir (fjölmiðlarnir) ofnota þær kannanir sem gerðar eru á þann hátt að allt of mikill tími hinnar eiginlegu kosningabaráttu fer í að fá viðbrögð misháttsettra flokksmanna stjórnmálaflokkanna við þeim. Með öðrum orðum eru fjölmiðlarnir búnir að stýra umræðunum í kringum kannanirnar í stað þess að láta umræðurnar stjórnast af sjálfum málefnunum. Ég varpaði þessari skoðun minni fram fyrir mörgum vikum og sýnist að síðan hafi þetta einungis ágerst ef eitthvað er. Svo held ég líka að stjórnmálamennirnir fari í kringum þetta hjá fjölmiðlafólkinu eins og köttur í kringum heitan graut því engan má jú styggja á viðkvæmum tímum. Þetta geta þeir þó afgreitt á mun skeleggari og skynsamari hátt finnst mér og ná þannig meiri og betri tíma í málefni.
9.5.2007 | 23:43
Orðatiltæki dagsins
Gamalt (eru þau það ekki öll þessi orðatiltæki, nema þá þau frá Sverri Stormsker), rússneskt orðatiltæki hljómar nokkurn veginn svona....
Ef maður horfir á fortíðina þá er maður blindur á öðru auga en ef maður horfir bara á framtíðina án þess að hugsa um fortíðina þá er maður blindur á báðum augum
Þetta finnst mér gott máltæki. Maður þarf að vera í tengslum við fortíðina til að geta farið fram á við inn í framtíðina.
Ég persónulega hef hins vegar svo gaman af tölum að ég vil alveg hafa þessar kannanir til að rýna í sjálfur og leika mér að þeim. Hins vegar vil ég að stjórnmálamenn séu látnir taka umræður um raunveruleg málefni og þá frekar láta "fótgönguliða" og stjórnmálafræðinga tjá sig um og greina kannanirnar.