Is 'Celebrity' The New 'Flip-Flop'?

Ein helsta kosningataktík Repúblikana í forsetakosningabaráttunni er að lita Obama sem "celebrity", það sé merkimiðinn sem festist við hann. Hann er óhæfur sem stjórnandi því hann er stjarna. Þetta er svipað og "Flip-flop" nafnið sem Gore fékk á sig fyrir fjórum árum. Innihaldið í auglýsingunum er sama og ekkert eins og sást í Hilton auglýsingunni.

Hér er reyndar svar hennar við þeirri auglýsingu. Ég hef aldrei verið hrifinn af henni en hún fékk plús fyrir þessi viðbrögð. "Energi crisis solved" hjá Paris.

Nú keyra Repúblikanar á nýrri auglýsingu í sama stíl, "is the biggest celebrity in the world ready to lead?" er aðalatriðið í henni. Kannski er þetta að virka, að mála Obama sem "celebrity" sem getur ekki tekist á við neitt og kannski er Obama ekki að hjálpa mikið til í þeim efnum sjálfur. Hann hefur verið vinsæll hjá tímaritum (sem og Michelle)undanfarið ár og rúmlega það. Þetta virkar að vísu oftast til vinsælda hjá tímaritunum.

Það glittir reyndar í breytingu á taktík hjá McCain. Í einni af nýjustu auglýsingunum sínum fjarlægir hann sig frá Bush-stjórninni. "Við erum verr stödd nú en fyrir fjórum árum" segir hann og gefur sig fram sem manninn til að laga það.

Það var að vísu ekkert flókið fyrir Obama að svara því.

Það held ég.


Trúnaðarmál!

Efni fundarins var trúnaðarmál.... en ....

Gallar og kostir prófkjörs voru ræddir á fundinum

Skemmtileg mótsögn hjá Hönnu Birnu.

Annars er það skiljanlegt að borgarfulltrúarnir vilji ekki prófkjör miðað við eftirhreytur þess síðasta hjá þeim.


Siðmenntað?

Fyrsti Guantanamo dómurinn féll í dag, sá fyrsti sinnar tegundar í Bandaríkjunum í meir en hálfa öld. Bílstjórinn fundinn sekur, að hluta a.m.k.. Hálfur sigur fyrir Bush-stjórnina segja fréttirnar, ekki fyrir neinn annan held ég.

handing the Bush administration a partial victory in the first U.S. war crimes trial in a half-century but failing to settle the debate over whether the proceeding was just.

Einhvernveginn hefur maður enga trú á þessu, sýndarmennska og þaðan af verra dettur manni í hug. En nú fylgja hátt í 80 í kjölfarið. Allt hættulegustu hryðjuverkamenn heims eins og fangabúðirnar voru reistar til að hafa í haldi.

We were told that Guantanamo was necessary because these were the world's most dangerous terrorists," said Wizner, who criticized the Pentagon for revealing little in the trial about U.S. interrogation techniques. "Salim Hamdan is not one of the world's most dangerous terrorists.

Bílstjórinn var dæmdur fyrir að keyra og gæta Bin Laden auk þess að flytja vopn fyrir Al Qaeda en sýknaður af öðru.

Þrátt fyrir að yfirheyrsluaðferðir hafi vart verið réttlætanlegar er athyglisverður punktur í úrskurðinum.

Legal observers said the decision could put the government at a disadvantage in future military trials of al-Qaeda leaders subjected to far more coercive conditions, such as "waterboarding," a form of simulated drowning.

"Even though the Justice Department hated it, that ruling probably did as much to inspire confidence in the system as anything that could have happened," said Stephen Saltzberg, a law professor at George Washington University and a former Justice official.

Þetta setur stjórnvöld kannski í vanda með hlutina?


Dönsk gúrka

Það er gúrkutíðin víða í fjölmiðlaheiminum. Hér hefur rúllað í dag frétt um stuld hótelgesta af hótelum. Fjórði hver stelur baðslopp eða einhverju álíka. Hver vissi þetta ekki? Hann er reyndar frumlegur þessi sem stal gullfisknum verð ég að segja.

Svo var það líka upplýst að núna eru til sölu fyrstu klónuðu hundarnir. Þá kætast danir, það eiga allir hund. Krakkarnir á leikskólanum Salbjargar koma meira að segja og segja mér frá hundunum sínum og eru yfir sig hneykslaðir þegar ég segi þeim að við eigum ekki hund. Í kringum fjórar milljónir stykkið og örugglega jafn leiðinlegir og fyrirrennarinn.

Og svo er allt á öðrum endanum í stjórnmálunum hérna útaf dómsúrskurði evrópudómstólsins varðandi innflytjendalögin hérna í Danmörku. Nú mega þeir ekki segja innflytjendurna í dönskupróf áður en þeir fá ríkisborgararétt segja þeir í Brussel. Öll síðasta vika hefur farið í þetta en, og þetta er kunnuglegt einhversstaðar frá, Anders Fogh Rasmussen hefur bara verið í sínu sumarfríi og ekkert gefið neitt færi á sér varðandi þetta mál fyrr en í dag (nema þá hann hafi verið með salmonellu). Neðst í þessari frétt er líka hægt að sjá kröfur evrópudómstólsins og tímalínu atburða. Sagt er að tíu lönd styðji Dani í þessu máli og vilji fara í hart.

Svo datt þeim líka í hug að segja frá athugun þar sem því er haldið fram að það sé dýrara að eiga son en dóttur.

Og í lokin svona fyrir Færeyingana. Grindhvalakjöt eykur hættuna á að fá Parkinson (vissi ekki að pabbi hefði verið mikið í grindinni).

Og vel á minnst, eftir að hafa ítrekað keyrt vitlaust í einstefnugötum og á móti bannað að aka inn skiltum er ég mikið að spá í að fá mér færeyskan fána á númeraplötuna mína, þeir eru nefnilega með svipað númerakerfi og við.


Clinton sem varaforsetaefni Obama?

Eftir að það komst í hámæli í síðustu viku að Obama væri nánast búinn að velja varaforsetaefni sitt kom í ljós að svo var ekki og mun fleiri séu í skoðun en talið var. Hann gerir hlutina aðeins öðruvísi en gert hefur verið hingað til og það er sagt að einungis þrír aðilar séu með heildarmyndina í ferlinu á hreinu og þeir gefi hreinlega engar upplýsingar. Þá er hægt að spegúlera.

Það læðist nefnilega alltaf meira og meira inn í umræðuna í kosningaslagnum vestan hafs að Obama muni velja Clinton sem varaforsetaefni sitt fyrir komandi kosningabaráttu.

Ekki Hilary heldur Bill. "Are his team vetting Bill?" er spurning dagsins.

Ég var aldrei sérstaklega hrifinn af Bill sem forseta þó hann hafi verið þokkalegur svo sem en þessi hugmynd er bara nokkuð spennandi finnst mér.


Yfirburðir Obama meðal láglaunafólks

Í dag voru birtar niðurstöður könnunar um fylgi Obama og McCain meðal láglaunafólks (undir 27þús. dollurum í árstekjur í fyrra) í Bandaríkjunum. Fylgi Obama meðal þessa hóps er 2 á móti einum hjá McCain. Yfirburðir Obama koma að þónokkru leyti vegna yfirgnæfandi stuðnings við hann hjá "African Americans" og "Hispanics" kjósendum sem hafa verið sterkir stuðningshópar Demókrata í gegnum árin. Meðal hvítra hefur hann þó einnig um 10% forskot á McCain en sá hópur kjósenda hefur verið talinn, af báðum aðilum, geta ráðið úrslitum í kosningunum í haust. En það eru blikur á lofti fyrir hann samt sem áður.

Still, one in six of the white workers polled remains uncommitted to either candidate. And a majority of those polled, both white and minority, are ambivalent about the impact of the election, saying that no matter who wins, their personal finances are unlikely to change.

Þessi kjósendahópur, þ.e. láglaunafólk, er í kringum fjórðungur Bandaríkjamanna og því mikilvægur kjósendahópur. Þetta eru því góðar vísbendingar í raun fyrir Demókrata.

The group, which accounts for nearly a quarter of U.S. adults, gives the Democrat the nod both as the more empathetic candidate and as the one who more closely shares their values. And while many express no opinion about who would do more to improve the economy or health care -- or the voters' finances -- Obama has the clear edge among those who picked a favorite on these core issues.

Og þetta er smá högg í leiðinni fyrir Repúblikana því þeir ætluðu sér (og gera enn) að herja verulega á þennan kjósendahóp.

In May, McCain adviser Charlie Black told reporters that the campaign would reach out to working-class white voters, in part because of Obama's difficulties wresting such voters from the Clinton camp.

"Senator Obama doesn't appear to have the ability to hold the traditional Democratic coalition together as well as Mrs. Clinton might," he said at the time.

Hér er síðan hægt að sjá greiningu sérfræðinga WP á þessari könnun. Skilmerkileg og vel fram sett. Og svo ef menn eru á kafi í könnunum er hægt að sjá heildarniðurstöðuna úr henni í þessu pdf skjali.

Svo fer ég að byrja á að greina hvert ríki fyrir sig. Í því sambandi er ákaflega áhugaverð grein í WP um Virginíuríki. Virgína hefur verið sterkt vígi Repúblikana og þeir kusu meira að segja Bob Dole frekar en Bill Clinton ´96. Þetta hefur þó eitthvað verið að linast og nú virðist geta brugðið til beggja átta varðandi það og Obama er með öflugt starf þar í gangi (Tim Kaine, sem talað hefur verið mest um sem varaforsetaefni Obama er ríkisstjóri í Virginíu).

Meira um þetta síðar þegar ég er búinn að ná heildaryfirsýn á vinnslu þessa efnis.


Danska salmonellufárið

Fyrsti þáttur í danska salmonellufárinu, sem hófst fyrir nokkrum vikum var á þá lund að þetta væri allt í innfluttu kjöti frá Evrópusambandinu. Það flæðir nefnilega svo mikið óskoðað kjöt þaðan, bæði vegna aukins innflutnings (ódýrara) og niðurskurðar í eftirliti. Helvítis Þjóðverjarnir sögðu Danir. Ætla að drepa okkur með salmonellu.

Annar þáttur hófst þegar loka þurfi sláturhúsi á Fjóni vegna salmonellu. For fanen, þetta voru þá ekki Þjóðverjarnir, nema þetta hafi verið danskur þýskari sem átti og rak þetta sláturhús. Sjáum hvernig þetta fer. Innkalla þurfti samt kjöt úr nokkrum stórum matvörukeðjum.

Þriðji og lokaþáttur salmonellufársins var síðan í dag þegar Dönum virðist vera orðið það ljóst að salmonellan er komin til að vera. Það verður bara að láta sig hafa það að éta helvítið, er hreinlega ekki hægt að útrýma henni og þar sem þetta er hjá okkur sjálfum hlýtur bara að vera allt í lagi að skófla þessu í sig. Reyndar rúmlega það. Danir þurfa nefnilega að búa við salmonelluna heima hjá svona rétt til að halda ónæmiskerfinu við svo þeir drepist ekki þegar þeir skreppa til útlanda og hitta hana fyrir.

Það er nefnilega það.

Nafni minn Reykás er ekki bara til á Íslandi.


Full langt gengið hjá umhverfisráðherra

Ég held að umhverfisráðherra hafi gengið fulllangt með ákvörðun sinni á fimmtudaginn. Efnisleg rök sem styðja hana eru léttvægari en þau sem eru á móti. Þetta lyktar því mjög sterklega af því að um steinlagningu í götu sé að ræða frekar en neitt annað.

Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifunum gefur langt í frá sjálfkrafa eitthvað betra ferli.

Framkvæmdirnar eru ekki algjörlega samhangandi heldur. Það getur augljóslega verið virkjað á viðkomandi svæði þó ekki verði af álversframkvæmdum og hver er þá staða sameiginlegs matsferlis?

Lagagrein sem vísað er til er notuð umfram meðalhófsreglu þar sem í henni er ekki krafa heldur heimild til þessarar aðgerðar sé niðurstöðunni ekki náð fram með öðrum hætti. Það á ekki við í þessu tilfelli miðað við hvernig málið hefur verið unnið og mun verða unnið.

En þetta í sjálfu sér gerir lítið annað en flækja málin töluvert og tefja eitthvað.

Það sem í raun eftir stendur er það sem þarf að útkljá.

Ætla stjórnvöld að stöðva þessar framkvæmdir eða styðja þær. Það er spurningin sem þarf að svara skýrt en ekki fara hringinn í kringum hana vegna þess að menn ræða ekki saman um hlutina og ná ekki niðurstöðu um þá.

Það er aðalvandamálið og það liggur hjá stjórnvöldum. Af eða á.

En það á svo sem við um fleiri mál á því borðinu.


Ég sá Elvis í dag

Hann hafði misst nokkur kíló og var með danskan hreim. Svo var líka einn með kontrabassa með honum.

Hann hefur átt betri daga en ég var svo sem aldrei hrifinn af Elvis.


Pólitíkin og Olympíuleikarnir

Þegar að Kínverjar og IOC hafa komist að samkomulagi, já einmitt, samkomulagi, um að hætta ritskoðun internetsins hjá fréttamönnum á leikunum smellir forseti Hu fram einstaklega skemmtilegri fullyrðingu.

"The issue has been solved," IOC vice-president Gunilla Lindberg told Reuters.

"The IOC Coordination Commission and BOCOG met last night and agreed," she said, referring to Beijing's Olympic organizers. "Internet use will be just like in any Olympics."

Við skulum ekki gera leikana pólitíska segir Hu.

But Hu made a plea not to politicize a Games that many had hoped would lead the country of 1.3 billion on a path toward greater political reform to match years of breakneck growth that has made it the world's fourth-largest economy.

"I don't think that politicizing the Olympic Games will do anything good to addressing any of the issues," Hu said.

It is only inevitable for people from different countries and regions may not see eye to eye with one another on some different issues," he said.

"And I think in this context, we should enter into consultations on an equal footing to narrow our differences and expand our common ground on the basis of mutual respect."

Hah segi ég nú bara. Held að ég sé sammála eftirfarandi.

"The IOC and the Chinese government I think are the ones to be held accountable here ... I think the blame related for anything related to the politicization of the Olympics really falls on their shoulders," said Lhadon Tethong, executive director of Students for Free Tibet.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband