Ummæli vikunnar

Ég held að ummæli vikunnar eigi fréttamaður CNN sjónvarpsstöðvarinnar eftir að þeir félagar Obama og Biden komu fram saman í fyrsta sinn í kosningabaráttunni.

Eftir ræður þeirra beggja var nefnilega niðurstaða fréttamannsins að þeir væru "eins og svart og hvítt".

Eiginlega ekki hægt að segja hlutina betur.


Miðarnir í haust!

Hvernig í fjandanum á maður annars að þýða þetta kosningahugtak frá Bandaríkjunum, "on the ticket"?

Það gaukaði að mér einn gárunginn vestan hafs að þetta væru svolítið sérstakir "miðar" í kosningunum í haust.

Obama/Biden væri hættulega líkt Osama Binladen en hinu megin væri "mormone and moron"

Já er það ekki bara.


Ég er sáttur!

Silfurverðlaun á Olympíuleikum er hreint ekki svo slæmt þrátt fyrir allt.

Frábært!


mbl.is Íslendingar taka við silfrinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantar aðeins uppá Olympíuandann!

Spurning um að láta vera að sparka í dómarann þó þú sért ósáttur.

Matos lay down, awaiting medical attention, but was then disqualified by referee Chakir Chelbat of Sweden for taking too much injury time.

A furious Matos reacted by pushing a judge, then pushed and kicked Chelbat in the face.

Þó svo að mikið sé í veði þá verða menn nú aðeins að nota skynsemina.


Og þeir halda gullinu

Smá sárabót fyrir annars frekar svekkta Dani er að þeir halda gullverðlaunum sínum í 49´er siglingakeppninni. Endanlegur dómur í því máli féll núna í morgun.

En, þeir eru frekar óánægðir með sitt hlutskipti á leikunum. Finnst sitt fólk ekki hafa staðið sig sem skildi, eiginlega bara langt frá því.

En þeir eru búnir að finna leið út úr svekkelsinu og hún felst í því að níðast á Svíunum. Þeim hefur nefnilega ekki gengið svo vel heldur og Danir gera mikið úr því hvað Kluft gekk illa auk annars.

Enginn er annars bróðir í leik.


Og Biden varð það!

Að Obama myndi velja Joe Biden var eitthvað sem var viðbúið en um leið samt ekki. Þess vegna var svona agalega mikill áhugi á málinu.

Einhverjir voru þó á því að áhuginn væri mestur hjá fjölmiðlunum en fólki almennt væri nokk sama um þetta, það fengi hvort eð er að vita þetta á endanum. Ég held að þetta sé ekki fjarri lagi, talaði við nokkra í  nótt sem voru á sama máli. Þeir voru að minnsta kosti orðnir pirraðir sumir fjölmiðlamennirnir að vera ekki komnir með þessar upplýsingar í gær, fannst þeir ekki vera starfi sínu vaxnir að ná ekki upplýsingunum frá Obama baráttunni.

Um leið fannst þeim það verulega "impressive" að upplýsingarnar um þetta væru ekki komnar til þeirra.

En það sem var skemmtilegast var að fylgjast með hvernig menn sveifluðust á milli þegar fréttir fóru af stað í gærkvöldi. "Það er þessi, nei það er þessi" og ein þrjú, fjögur nöfn voru uppi á borðum í fjölmiðlunum í einu með misgáfulega heimildamenn fyrir þeim. Þetta sveiflaði sér svo yfir í bloggheima og fékk sniðugar birtingarmyndir þar, bæði vestan hafs og heima á Íslandi líka þar sem maður sá pósta um þrjú nöfn á nokkrum klukkutímum.

Eiginlega algjör snilld.

En annars eru menn missáttir við þessa útnefningu, finnst þetta vera pínu afturför frá breytingaþemanu sem Obama hefur gert út á fram að þessu.

Mér finnst líka eins og hann sé að segja já við þeirri gagnrýni að hann sé ekki tilbúinn til að takast á við hlutina.

En svona eru hlutirnir bara. Biden, eins og aðrir kemur með jákvæða hluti inn í kosningabaráttuna sem og neikvæða, líkt og allir aðrir hefðu gert.


Dorrit að smygla mönnum inn á gólfið í fagnaðarlætin

Algjör snilld þessi grein (þessi líka svo sem) og athugasemdirnar ekki síðri sumar hverjar. Þessar tvær eru í uppáhaldi.

Pretty cool that for 3 seconds someone thought you were the president of a country

Even cooler that Iceland has a first lady that will run a scam on Olympics security personnel.

Og hugsanagangur fyrirliðans síðan bestur held ég. Ég er ekkert smeykur við úrslitaleikinn.

The next 48 hours will only have value if we will focus on the gold medal

Maður verður lengi að ná sér af þessu.


Flottar myndir úr leiknum

Reyndar líka úr Póllandsleiknum.

http://www.washingtonpost.com/wp-srv/sports/olympics/longterm/2008/beijing/photos/iceland.html

 


Ótrúlegur árangur

Hreint út sagt stórglæsilegur árangur.

Með fullri virðingu fyrir þeim sem á undan eru gengnir í starfi markvarðar þá hefur Björgvin verið síðasti bitinn í púsluspilið að þessu sinni.

Þar fyrir utan hafa allir haldið höfði og ég er ekki frá því að Ólafur sé búinn að stimpla sig sem besta handknattleiksmanns þjóðarinnar, fyrr og síðar.

Ekki það að það var allt til staðar sem til þurfti og ekkert gefið. Menn unnu fyrir þessu og einhvernveginn hafði maður alltaf á tilfinningunni í leiknum að þetta færi svona. Það var þetta gamla íslenska útlit á Spánverjunum allan leikinn.

Nú getur maður gert raunhæfa kröfu á gull.

Snilld.


mbl.is Íslendingar í úrslitaleikinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfrýjun

Enn sættir suður kóreska liðið sig ekki við tapið í gær. Þrátt fyrir að IHF sé búið að úrskurða lokatölur leiksins endanlegar er haldið áfram.

Búið er að áfrýja niðurstöðu IHF og þá verða menn að vera með snör handtök því úrslitaleikirnir eru á morgun.

Íþróttadómstóllinn alþjóðlegi er reyndar til staðar á OL því rétta átti í dag í máli Ítala og Spánverja á móti Dönum í siglingamálinu en því var frestað til morguns því kalla á þjálfara Dananna til sem vitni og hann var farinn heim.

En í raun finnst mér þetta of mikið. Þó mikið sé í húfi þá verða menn að láta sér segjast og halda áfram.

Sem var svo eitthvað sem Danirnir gerðu ekki í handboltanum. Voru bara súrir og leiðinlegir og notuðu orð eins og skidt og lort.

Svei mér þá.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband