9.11.2008 | 10:24
Hugmynd dagsins
Nú er enn einn hálffrægur heimsborgarinn á hrakhólum, þvælist á milli landa og fær hvergi hæli.
Er þá ekki við hæfi að Íslendingar stökkvi til, eins og endranær, og bjóði Omari Bin Laden hæli og ríkisborgararétt.
Það getur ekki skaðað okkur hvort sem er á alþjóðavísu, held að orðsporið fari ekki neðar úr því sem komið er.
Þessi greiði gæti jafnvel orðið til aukningu ferðamannastraums til landsins, hann er jú í stórri fjölskyldu.
Næsta verkefni ríkisstjórnarinnar ætti að vera að ganga í þetta mál, hún virðist hvort sem er ekkert vera að gera annað nema þá vita ekkert um lán sem allir aðrir vita um.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hann gæti fengið far með ónefndum aðila í einkaþotunni, fengið herbergi á 101 og svo gæti gamli maðurinn í röndótta búningnum gefið honum í nefið og rauðan vasaklút um höfuðið
Guðrún (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 10:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.