28.8.2008 | 09:05
Fréttir eða ekki?
Mér finnst það skrýtið að fjölmiðlar telji það vera fyrirsagnarvert að Bill Clinton (og Hilary) styðji Obama. Það eru í sjálfu sér ekki fréttir að þau styðji hann.
Það sem eru aftur á móti fréttir er hvernig stuðningur þeirra við hann er framreiddur og það er fyrirsagnarvert.
Bill komst nefnilega vel frá sinni ræðu á flokksþinginu í gær með skýrum og nákvæmum stuðningsorðum þar sem Obama var mærður á réttan hátt fyrir komandi kosningabaráttu. Hilary var laus við það í fyrrakvöld. Samt vantaði einhvern neista hjá Bill, líkt og Hilary. Það er áhyggjuefni Demókrata.
Að skyggnast undir yfirborðið og skýra hlutina er betri fréttamennska flöt frásagnagleði hraðans án innihalds.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:07 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.