15.2.2008 | 23:29
Texti dagsins
Er hægt að setja kreppu manns í betri búning?
Aaaaææææehh
Kominn dagur, fer á fætur
Í eldhússkápnum enginn biti ætur
Fæ mér kaffi ..... anei, það er búið
Lífið er einfalt en samt svo snúið
Ekki óskabyrjun dagsins, en það versnar enn.
Háið í tagli en orðið gisið
Lifrin í klessu, lélegt brisið
Á sossunum eins og flestir Danir
Kominn með ístru og ristruflanir
Það er nefnilega það. Þetta er einn af textum síðasta árs, algjör snilld. Og svona í restina innan úr miðju lagi:
Er hvorki lengur hipp né kúl
Og hlusta einn á Rúna Júl
Spurningin er svo hvaða hljómsveit og hvaða lag?
Athugasemdir
Nú veit ég ekki en skít á einhverja norðlenska grúppu t.d. Ljótu hálvitana.
Ásdís Sigurðardóttir, 15.2.2008 kl. 23:41
Ekki alveg, en samt
Ragnar Bjarnason, 16.2.2008 kl. 14:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.