Kosið hjá Demókrötum í dag

Demókratar kjósa í Suður-Karólínu í dag en mér sýnist Obama komi til með að vinna næsta örugglega.  Nýjasta könnun Reuters er Obama með 41%, Clinton 26% og Edwards 19%. Kannanir síðustu 10 daga hafa verið á þann veg að Obama hefur haldið sínu, Clinton verið frekar á niðurleið og Edwards uppávið. En svona líta þær út:

ReutersC-Span/Zogby01/24 - 01/25816 LV412519Obama +16.0
SurveyUSA01/23 - 01/24553 LV433024Obama +13.0
ReutersC-Span/Zogby01/22 - 01/24811 LV382521Obama +13.0
SurveyUSA01/22 - 01/23685 LV452922Obama +16.0
Mason-Dixon01/22 - 01/23400 LV383019Obama +8.0
Reuters/CSpan/Zogby01/21 - 01/23811 LV392419Obama +15.0
Clemson01/15 - 01/23LV272017Obama +7.0
Reuters/CSpan/Zogby01/20 - 01/22811 LV432415Obama +19.0
Rasmussen01/21 - 01/21624 LV432817Obama +15.0

Erfitt er að átta sig á stöðunni í einni könnun heldur er betra að sjá nokkrar saman til að reyna að fá tilfinningu fyrir því hvað er að gerast. Einnig verður að hafa í huga að margt getur gerst á stuttum tíma, jafnvel síðasta sólarhringinn fyrir kosningu. Ég held samt að í þessum lista sé Rasmussen könnunin einna ómarktækust, hún er tekin á einum degi og með minnsta úrtakið. (Taflan er tekin héðan)

Ég set inn tölur í kvöld og kannski einhverja heimatilbúna greiningu á þeim síðar í nótt svo.

Svo er reyndar ein villa í fréttinni. Það er kosið í Flórida hjá Demókrötum á þriðjudaginn eins og Repúblikönum, þær telja bara ekki. Því var eins farið með Michigan um daginn.


mbl.is Kosið í Suður-Karólínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rasmussen-kannanir eru ágætar. En ég skoða helst: Reuters, Gallup og Washington Post. Gallup er meðal annars að finna á vef BBC, þar er hægt að skoða þetta í línuritum osfrv. Þar sést hversu vel þetta er að ganga hjá honum Obama(Miðað við stöðuna haustið 2007). Og varðandi villur í fréttum Mbl.is um forkosningarnar... þá er nóg af þeim.

Barack Obama (IP-tala skráð) 26.1.2008 kl. 21:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband