16.7.2008 | 09:41
Spurning um að láta tívolíin og skemmtigarðana vera
Það líður ekki sá dagur núna hérna í Danmörku öðru vísi en það séu fréttir af skemmtigarða- og tívólíslysum. En auðvitað datt þetta í keppni og Svíarnir slógu Dönunum við í gær með fjölda.
Annars virðist þetta vera alls staðar, Tivoli Friheden, Djurs sommerland, Farup sommerland. Það er reyndar af nógu að taka hérna, skemmtigarðar út um allt og maður virðist helst fá að vita nöfnin á þeim í fréttunum því það er ný slysafrétt daglega.
Við látum þetta vera og klöppum bara ljónunum og fílunum í dýragörðunum í staðinn, það er öruggara.
ps. Gleymdi því auðvitað að það er ekki hægt að klappa fílunum. Þeir eru nýbúnir að slíta barnavagn af konu einni í einu sumarlandinu hérna. ÚFF, það eru bara ljónin sem eru hættulaus.
Vinir og fjölskylda | Breytt 17.7.2008 kl. 18:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.7.2008 | 20:08
Takk strákar!!
Smiðirnir á youtube. Niðursveiflan í íslensku hagkerfi í dag, ekkert að gera hjá iðnaðarmönnum.
3.7.2008 | 19:19
New York Waterfalls
Ég verð nú að segja að þetta er ágætlega tilkomumikið hjá Ólafi Elíassyni, fossarnir í New York.
Hér er umfjöllun CNN um þá, sem reyndar er partur af "grænni viku" þeirra.
Og hjá NYPost
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.6.2008 | 13:26
Úrslitin í Þingeyjarsveit / Aðaldælahreppi
Þá er maður búinn að sjá kosningaúrslit gærdagsins í Þingeyjarsveit/Aðaldælahreppi fyrir utan nafnakönnunina.
Það kemur svo sem ekki á óvart að A listi sveitarstjórnarfólks hafi verið með yfirburðastöðu á G lista nýgræðinga.
Úrslitin sjálf, A-listi 413 atkvæði - G- listi 91 atkvæði sýna aftur á móti að hlutfall atkvæða endurspeglar ekki hlutfall fulltrúa í sveitarstjórn (1/4,53 og 1/6) en auðvitað er það aldrei hægt að svo sé þegar svo fáir fulltrúar eru.
Það hefði þurft að vera 28-35 atkvæða sveifla til að fulltrúafjöldi breyttist eitthvað, en sú sveifla í hvora áttina sem var hefði verið ákaflega áhugaverð.
Hefði hún verið um 28 atkvæði til A lista þá hefði komið til hlutkestisákvörðunar á milli 7. manns á A lista og 1. manns á G lista. Hefði hún aftur á móti orðið 35 atkvæði til G lista hefði komið til hlutkestisákvörðunar milli 6. manns á A lista og 2. manns á G lista.
Þessar sveiflur eru aftur á móti frekar miklar prósentulega séð til að vera raunhæfar til skoðunar miðað við aðstæður.
En niðurstöðurnar auka ekki líkurnar á að maður stökkvi heim strax, ekki frekar en efnahagsaðstæður og aðgerðaleysi ráðamanna. "Status Q" fær hér nýja nærtæka og tvöfalda merkingu fyrir manni.
Það held ég.
27.6.2008 | 21:44
Kosningar
Það eru kosningar á morgun. Ekki í Bandaríkjunum að þessu sinni heldur í sameinaðri Þingeyjarsveit og Aðaldælahreppi.
Ég sem ætlaði að vera kominn í netsamband fyrr og beita mér í aðdragandanum.
Kostirnir eru að vísu ekkert endilega merkilegir en líklega skárri en í síðustu forsetakosningum og það er kosið sem er auðvitað stórmál.
Þar sem ég ætlaði að segja svo mikið er erfitt að segja nokkuð þegar svo skammt er til stefnu.
Ég verð þó að segja að ég veit ekki hvort er verra að vera siðlaus eða leiða siðleysið til áhrifa en menn geta auðvitað gert margt með óbragð í munni eins og einn sagði áður en við fórum.
Það held ég.
ps. Bendi á heimasíðu annars framboðslistans, hinn er ekki með heimasíðu svo ég best viti.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.6.2008 | 19:06
Skammt stórra högga á milli
Nú er skammt stórra högga á milli hjá Birkifellsfjölskyldunni. Eftir stækkun fjölskyldunnar skal haldið til Danaveldis til tímabundinnar dvalar (eitt ár). Þetta er búið að vera í bígerð en hefur haft sínar sveigjur og beygjur eins og svo margt annað.
Við erum sem sagt að flytja til Danmerkur eftir hálfan mánuð en búslóðin fer af stað nú á eftir, þar með talin tölvubúnaður þannig að stopult verður skrifað hér næstu tvær vikur.
Síðan verður tekið til af krafti þegar til Danaveldis kemur og skrifað og skrafað um stjórnmál, amerísk og dönsk en ætli maður dragi sig ekki til hlés í þeim íslensku að sinni.
Snáðinn verður síðan skírður þann 13. júní næstkomandi í Þorgeirskirkju, svona rétt í tíma áður en út er farið.
Það held ég.
1.6.2008 | 09:39
Níundi áratugurinn aftur
Ég lifði níunda áratuginn af og ætlaði ekki þangað aftur.
Hann er nú samt kominn aftur. Verðbólgan föst í tveggja stafa tölu og Lakers og Celtics í úrslitum NBA.
Mér er sama um seinna atriðið en það fyrra sækir verulega á mig.
25.5.2008 | 12:49
Systkinamynd
Ágæt mynd hér af þeim þremur.
Annars var jaxlinn sendur með hraði í hjartaómskoðun seinnipart föstudags, heil hrúga af blóðprufum teknar og lagður inn á barnadeild. Þess vegna eru systur í sloppum, rétt svo fengu að heimsækja hann.
Allt í góðu var svo niðurstaðan því betur.
21.5.2008 | 12:24
Nýjasti Framsóknarmaðurinn!
Alveg glænýr, síðan klukkan tíu mínútur í tíu í morgun.
Og önnur
Stór og stæðilegur, 58cm og 4890 gr.
Heilsast vel, báðum.
21.5.2008 | 04:37
Ekki alveg rótburst í Oregon
Það fór eins og sagt var fyrirfram að Obama ynni prófkjörið í Oregon. Munurinn er bara kannski ekki alveg jafn stór og verið var látið liggja að og ekki er það alveg rótburst eins og hjá Clinton í Kentucky. Þar var niðurstaðan 65-30 henni í vil (37-14 í kjörmönnum talið) og ekki var hún nú alveg á því að láta í minni pokann í kjölfar þess.
Sigur Obama í Oregon stefnir í að vera með 10-15% mun, öruggur og leiðir hann vel á veg í kjörmannatalanaleiknum. Setur hann vel yfir 1627 kjörna kjörmenn eins og ég talaði um fyrr í nótt.
En hann þarf að stíga varlega til jarðar í framhaldinu og þau bæði reyndar til að ná að sameina flokkinn fyrir sjálft forsetakjörið í haust. Það er ekkert voðalega langur tími til stefnu og það glitti svo sem í þann sameiningartón hjá Clinton í sigurræðu hennar í Kentucky, ef maður leitaði sérstaklega vel eftir því að minnsta kosti.
Á eftir að finna myndband af ræðu Obama í Iowa síðan og setja hér inn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)