Fiskað í gruggugu vatni

Frekar finnst mér Sjálfstæðismenn í henni Reykjavík vera að fiska í gruggugu vatni síðustu sólarhringa.

Nú á að setja Framsókn fram sem einhvern vönd á að hemja Ólaf F. en eigin skinni geta þeir auðvitað ekki bjargað úr þessu.

Finnst mönnum ekkert gruggugt hvað fréttaflutningur af þessum fundum öllum og þreifingum er með ágætum. Ekkert í líkingu við myndun meirihluta síðast hjá þeim.

Þó ég sé björgunarsveitarmaður finnst mér ekki fýsilegt að bjarga Sjöllum úr sjálfskipaðri prísund í handarkrika stuðmannsins og læknisins.

Að berja á Ólafi er þeirra mál, óþarfi að nota Framsókn sem vönd í það.


Gamla pannan mín og Sjálfstæðisflokkurinn

Loksins er Sjálfstæðisflokkurinn orðinn eins og gamla pannan mín. Teflonhúðin man fífil sinn fegurri allt gumsið farið að sitja fast.

Ég get sjálfum mér um kennt varðandi pönnuna en Ólafur F. á heiðurinn varðandi Sjallana.

Þessa hlið á störfum Ólafs F. kann ég hreint út sagt, ágætlega við.


Ég er ekki alveg frábitinn Rússum í þessu máli

Held að það sé full fljótleg leið að taka Rússana eingöngu í gegn fyrir Ossetíuátökin. Málin eru svolítið flóknari en það.

S-Ossetía er hérað sem hefur leitað leiða til fullveldis og Rússar hafa verið með stjórn á ákveðnum svæðum þar fyrir þessi átök.

Georgíuforseti hefur síðan spilað sig ákaflega vestrænan og evrópskan og sett málin eiginlega upp þannig að Rússar séu að ráðast á Evrópu. Og fengið fullan stuðning í þá átt frá örvitanum Bush. Þannig hafa þeir báðir gerst sekir um að spila sig of stóra fyrir aðstæðurnar. Það er allt í lagi að ráðast inn í Írak á lognum fölskum forsendum en það má nánast ráðast á Rússana fyrir það sama.

Held samt að sendiherra Rússlands hjá Sameinuðu Þjóðunum hafi í viðtali við CNN í dag gengið full langt þegar hann sagði Georgíuforseta ekki vera með pólitíska stjórn á landinu frekar en fulla stjórn á sjálfum sér.

Viðtöl CNN við Saakasvhili fannst mér heldur bera merki um eitthvað vanmat á stöðu mála.

Ég er ekki frábitinn Rússum í þessu þó ég sé mjög frábitinn stríðsrekstri.

PS Þetta finnst sumum Rússum um hlutina.


Kaup gærdagsins og smá um bensínverð

Keypti mér hjól í gær, alveg ágætis tæki. Þá getur maður lagt bílnum og sparað helling auk þess að leggja sitt af mörkum til minni mengunar.

Ég er nefnilega pínulítið sammála Anders Fogh um að bensínið eigi að vera dýrara.

“I have observed that in all other countries, including in America, people are complaining about how prices of [gasoline] are going up,” Denmark’s prime minister, Anders Fogh Rasmussen, told me. “The cure is not to reduce the price, but, on the contrary, to raise it even higher to break our addiction to oil. We are going to introduce a new tax reform in the direction of even higher taxation on energy and the revenue generated on that will be used to cut taxes on personal income — so we will improve incentives to work and improve incentives to save energy and develop renewable energy.”

Þetta var haft eftir forsætisráðherranum í NYT á föstudaginn og viðbrögð heima fyrir eru frekar blendin.


Tæknitröllið Obama

Þetta er eiginlega snilld hjá Obama að tilkynna um varaforsetaefni sitt á þennan hátt. Þá voru skilaboðin um þann hátt fljót að berast stuðningsmönnum hans milliliðalaust.

Barack Obama is about to make one of the most important decisions of this campaign -- choosing a running mate.

You have helped build this movement from the bottom up, and Barack wants you to be the first to know his choice.

You will receive an email the moment Barack makes his decision, or you can text VP to 62262 to receive a text message on your mobile phone.


No other campaign has done this before. You can be part of this important moment.

Ég fékk þennan póst í nótt og mér finnst mikið til þessarar aðferðar koma verð ég að segja. Eins er þetta illa dulbúin auglýsingaherferð því í þessu fólst að þú gast skráð vini og ættingja inn í kerfið einnig. Svo fylgdi auðvitað með hvernig þú gast styrkt framboð hans.

Algjör snilld.


Besta atriði Attenborough

Þetta atriði var kosið besta atriði hjá David Attenborough hjá Bretum fyrir ekki svo mörgum árum. Ég er algjörlega sammála valinu. Kaldhæðnin er skelfilega nákvæm og innslagið í sjálfu sér hrein snilld.


Ekki nálægt

Heimismenn voru svo sem ekki nálægt stríðsatburðum en það er samt ágætt að vita af þeim komnum út úr Rússlandi.

Annars dauðlangaði mig með þeim í þessa ferð.

Þeir sluppu ekki við áritanir inn í landið eins og margir áhorfendur á meistaradeildarúrslitin í vor. Mikil pappírsvinna að fá þær áritanir og einhver smá kostnaður. Þegar ég fór út í sumar var mér ekið til Keflavíkur af þeim sem var að vinna í þeirri pappírsvinnu og þótti það ganga í hægari kantinum. Var á leið í sendiráðið um morguninn með slatta af pappírum og taldi þá allt að verða klárt enda ferðin þá ekki nema einn og hálfan mánuð frá.


Jónas ætti að þekkja þetta

Hann virðist vera fúll hestamaðurinn Jónas Kristjánsson yfir yfirgangi og fáfræði sumarhúsaeigendanna.

Hann hefur nú séð þetta örlítið nær sér í örlítið breyttri mynd og ekki þótt ástæða til umfjöllunar.

Ég er samt sammála undirtóninum hjá honum, yfirgangur og frekja sumarhúsaeigenda varðandi ráðstöfun lands (jafnvel í kringum sig án eignarréttar nokkurs konar) getur gengið út yfir allt og verið dragbítur á eðlilegar gjörðir.


Útséð með Edwards

Þá held ég að það sé útséð með að John Edwards verði eitthvað númer hjá Demókrötum í kosningabaráttunni eða framhaldi hennar.

Edwards's admission, which followed several weeks in which he avoided reporters and refused to answer their questions, came as top campaign aides to Sen. Barack Obama (D-Ill.) were debating whether Edwards should speak at this month's Democratic convention. Several said privately that the Enquirer stories had become such a distraction that they would prefer the Democrats' 2004 vice-presidential nominee have no role at all. Edwards, who drew live network coverage in May when he endorsed Obama for president, had been expected to have a prominent speaking slot to discuss poverty issues at the Denver gathering.

Eitt að halda framhjá konunni, annað að hún er svo alvarlega veik og þriðja að ljúga svo til um allt saman.

Fellur ekki í góðan jarðveg hjá mörgum ameríkananum þrátt fyrir fjöllaga siðgæðisvitund þeirra margra.


Þetta er ekki alveg í lagi!

Ég var eiginlega búinn að ákveða að blanda mér ekki í íbjarnarumræðuna, aðallega vegna Skagfirskra tengsla minna.

En björgunartilraun uppá meira en 7 milljónir er ekki í lagi.

Var ekki hægt að lækka þetta eitthvað með þessum sérhæfða veiðara á Egilsstöðum? Eða hreinlega fella dýrið bara strax, alveg vitað hvort sem er að ekki væri hægt að ná því lifandi.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband