Þarna fékk Obama að heyra það

McCarthyhögg á Obama frá McCain. Þetta var þá trompið í erminni hjá honum sem snýr kosningabaráttunni honum í vil.

Þeir fara jú ekki að kjósa sósíalista sem forseta er það nokkuð?


Lokahøggid a McCain

Ætli thad verdi ekki ad teljast lokahøggid a McCain ad Colin Powell lysir yfir studningi vid Obama a morgun.

Thar med er farinn sidasti møguleiki McCain a ad retta sinn hlut fyrir kosningar med thvi ad beina sjonum kjosenda ad utanrikismalum.

Powell er liklegast sa eini sem komid hefur nalægt Bush stjorninni en er thokkalega vinsæll. Thungavigtarmadur ur rødum Republikana sem stydur Obama.

Thad renna øll vøtn til Dyrafjardar ordid.


Úkraína fær aðstoð IMF

Úkraína hefur óskað eftir aðstoð IMF og mun að öllum líkindum fá slíka aðstoð til að komast í gegnum hríðina að sinni.

En Ísland virðist draga lappirnar í því að fá úrlausn sinna mála og þó eru hlutirnir öllu verri hér sýnist manni.

Búið að skrúfa fyrir krónuna sem gjaldmiðil erlendis og verið að ganga af fyrirtækjum dauðum þess vegna. Atvinnulífið að fara í þrot en engin lausn hjá stjórnvöldum í sjónmáli.

Eða jú, var ekki forsætisráðherra að tala um að opna aðgang almennings að því að koma með hugmyndir um hvað gera skyldi.

Hélt samt að hann væri búinn að fá að heyra nógu og margar hugmyndir, það þarf kannski að hrinda þeim í framkvæmd fyrir hann líka.


Forsetakosningarnar í stuttri útgáfu

Hafi menn ekki tíma eða nennu til að fylgjast með forsetakosningunum í Bandaríkjunum af fullum krafti þá er ein styttri leið til þess.

Það ætti nefnilega að vera nóg að fylgjast með gangi mála í Missouri ríki. Missouri hefur nefnilega alltaf utan eitt skipti, kosið þann frambjóðanda sem varð forseti.

Það kallar maður gott.

En hvernig er staðan þar samkvæmt skoðanakönnunum? Jú, ríkið er ennþá skráð hjá flestum sem "toss up state" en kannanir síðustu tuttugu daga sína tölur á bilinu McCain +3 til Obama +8. Samanteknar kannanir sýna síðan Obama með 2,5% forskot á McCain.

Það á eftir að taka þá langan tíma að venja sig við svartan mann í Hvíta húsinu.


Er það bara ég eða ?

Hefur formaður efnahags- og skattanefndar ekkert um efnahagsástandið að segja eða hefur það bara farið framhjá mér?

Menn hafa nú opnað kjaftinn yfir minna og jafnvel mátt þegja samt þá.


Gjaldmidillinn verdur ekki reistur ur dvalanum

Thad er deginum ljosara ad halfsmanadarstopp gjaldmidilsins okkar hefur endanlega skorid ur um ad hann verdur ekki notadur lengur. Thad hefur manni reyndar verid ljost i thonokkurn tima ad svo væri.

Mer datt heldur aldrei i hug ad taka husnædislan i erlendri mynt thvi fyrir mer var thetta astand i dag bara timaspursmal tho thetta se heldur verra en madur atti von a.

En malid er ad thad er ekki hægt ad 300 thusund manna samfelag geti haft eigin gjaldmidil sem er fullfljotandi an tengingar vid adrar myntir. Danir til ad mynda, sem eru med sterkara og fjølbreyttara hagkerfi en vid og eru ad auki riflega fimm milljonir tengja kronuna sina fast vid evru. Thad er sidan reyndar bara timaspursmal hvenær their afleggja kronuna og taka upp evru.

En thessi korktappamynt okkar er thad sem eg a erfidast med ad skilgreina, hvad tha verja fyrir dønskum vinum minum.

Og their hafa rett fyrir ser. Kronan hefur verid notud i gegnum arin til ad fiffa til hlutina i hagkerfinu okkar og thad er bara ekki rettlætanlegt lengur. Thad er ekki verjandi heldur ad halda uti mynt sem hægt er ad leika ser ad. Thad tharf ekki nema medalfyrirtæki til ad leika ser ad genginu.

Thar fyrir utan er allur truverdugleiki kronunnar islensku nu endanlega farinn. Thad svarar ekki fyrirhøfninni ad reyna ad retta thennan truverdugleika vid. Thad tekur allt of langan tima og tekst ad øllum likindum aldrei.

Thad eina retta i stødunni virdist manni thvi vera ad skipta kronunni ut sem gjaldmidli og taka upp annan. Thad ma gjarnan vera norska myntin min vegna, hvort sem um millistig væri ad ræda edur ei.

Midad vid støduna nuna getur thad ekki skapad meiri glundroda ad ganga i thetta mal strax.


Það versta við að hafa ekki verið í ESB seinustu árin

Ef við hefðum verið í Evrópusambandinu síðustu árin hefðum við getað losað okkur við Davíð á Evrópuþingið í staðinn fyrir að sitja uppi með hann í seðlabankanum.

Þetta gera aðrar almennilegar Evrópuþjóðir.


Skiljnalegt, en samt...

Ég var í sambandi við viðskiptabanka minn í dag en hann heldur ennnþá sjálfstæði sínu.

Engar gjaldeyrisfærslur í dag nema vegna lyfja-, olíu- eða matvörukaupa.

Ekki til námsmanna erlendis. Jafnvel þó þeir eigi ekkert, hvorki fyrir mat eða lyfjum.

Temprun gjaldeyris er allt í lagi við þessar aðstæður en nauðsynlegar færslur geta samt verið út fyrir framangreind þrjú atriði finnst mér.


Viðvaningur dagsins

Það er ekki endilega sá dómur um Söruh Palin að hún hafi misnotað vald sitt sem er hvað verstur í nýbirtri skýrslu. Það finnst mörgum verra að allt í málinu hafi yfir sér viðvaningslegt yfirbragð.

But the Branchflower report still makes for good reading, if only because it convincingly answers a question nobody had even thought to ask: Is the Palin administration shockingly amateurish? Yes, it is. Disturbingly so

Annars er farið að kastast í kekki milli hennar fólks og McCains um það hversu hart á að ganga fram í baráttunni gegn Obama. Henni finnst McCain heldur linur, enda hún nýbúin að segja að hann hangi með hryðjuverkamönnum en McCain finnst hann ósköp heiðvirður maður sem hann hafi bara smá grundvallarósætti við.

Held samt að hún sjái að þessar kosningar séu tapaðar en það koma aðrar nefnilega eftir fjögur ár. Hún er farin að líta til þeirra og gerir sig líklega til að ná forskoti í forkosningunum fyrir þær.

Best samt að hún hafi í huga að svoleiðis virkaði ekki hjá Hilary.


Fyrir ættingja og vini

Þrátt fyrir stöðuna undanfarna viku, sem enn er ekki komin í lag varðandi lausafjárstreymi frá Íslandi hingað út, höfum við það þokkalegt.

Það bjargar okkur þessa dagana að ég hef dæmt fótbolta hér og greiðslur fyrir það eru hálfsmánaðarlega. Á því björgum við okkur út mánuðinn en eðlilega höfum við skorið allt niður nema það allra nauðsynlegasta.

En sjáum hvað þetta gerist hratt því auðvitað verða þessir hlutir að komast í lag.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband