Full langt gengið hjá umhverfisráðherra

Ég held að umhverfisráðherra hafi gengið fulllangt með ákvörðun sinni á fimmtudaginn. Efnisleg rök sem styðja hana eru léttvægari en þau sem eru á móti. Þetta lyktar því mjög sterklega af því að um steinlagningu í götu sé að ræða frekar en neitt annað.

Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifunum gefur langt í frá sjálfkrafa eitthvað betra ferli.

Framkvæmdirnar eru ekki algjörlega samhangandi heldur. Það getur augljóslega verið virkjað á viðkomandi svæði þó ekki verði af álversframkvæmdum og hver er þá staða sameiginlegs matsferlis?

Lagagrein sem vísað er til er notuð umfram meðalhófsreglu þar sem í henni er ekki krafa heldur heimild til þessarar aðgerðar sé niðurstöðunni ekki náð fram með öðrum hætti. Það á ekki við í þessu tilfelli miðað við hvernig málið hefur verið unnið og mun verða unnið.

En þetta í sjálfu sér gerir lítið annað en flækja málin töluvert og tefja eitthvað.

Það sem í raun eftir stendur er það sem þarf að útkljá.

Ætla stjórnvöld að stöðva þessar framkvæmdir eða styðja þær. Það er spurningin sem þarf að svara skýrt en ekki fara hringinn í kringum hana vegna þess að menn ræða ekki saman um hlutina og ná ekki niðurstöðu um þá.

Það er aðalvandamálið og það liggur hjá stjórnvöldum. Af eða á.

En það á svo sem við um fleiri mál á því borðinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórir Aðalsteinsson

Sæll Ragnar,

nema þetta séu fyrstu merki um stjórnarslit.  Það skýrir ýmislegt. 

Þórir Aðalsteinsson, 4.8.2008 kl. 11:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband