Snilld

Nú voru Arsenal menn teknir algjörlega í bakaríið. Þrátt fyrir að hafa laumað inn einu marki og lekið boltanum í stöngina eins og tvisvar sinnum þá var þetta aldrei spurning.

Crouch með þrennu og hvert markið öðru betra. Besti maður vallarins.

Svo sá maður Gerrard í nýrri stöðu sem framherja.

Frábær leikur.


mbl.is Crouch með þrennu í 4:1 sigri Liverpool á Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur H. Bragason

til hamingju með sigurinn, loksins geta poolarar brosað yfir góðum úrslitum í deildinni

Guðmundur H. Bragason, 31.3.2007 kl. 14:41

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hvað er eiginlega í gangi með okkar menn þetta tímabilið?? maður er bara hættur að horfa á leikina. Ég er nú búin að halda með þeim svo lengi að ég hætti því nú ekkert þótt illa gangi, en voða væri gaman að sjá góðan leik með þeim.

Ásdís Sigurðardóttir, 31.3.2007 kl. 15:31

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Til hamingju með sigurinn Ragnar.

Svava frá Strandbergi , 31.3.2007 kl. 16:44

4 Smámynd: Ragnar Bjarnason

Já nú brosi ég, takk fyrir. Þetta er allt saman á uppleið. Feikigóður framkvæmdastjóri sem er algjörlega að mínu skapi, laus við alla uppgerð og hroka. Vinnur bara sitt og fær núna ennþá sterkari grundvöll til að vinna á.

Ragnar Bjarnason, 1.4.2007 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband