Eiður Smári til Newcastle

Menn hafa verið að velta því upp í dag að Eiður Smári sé á leiðinni til Newcastle og hitti þar fyrir sinn gamla framkvæmdastjóra frá tíma sínum með Bolton, Stóra Sam.

Aðalfréttin er sú að Allardyce sé á leiðinni til Barcelona til að ganga frá kaupum á Edmilson hinum brasilíska en í raun sé hann að reyna að fá Eið, sem sagður er "out of favor" á Nou Camt, til sín í leiðinni.

Athyglisvert að sjá hvernig þessi fer fram.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég hef auðvitað eins og flestir Íslendingar verið aðdáandi Eiðs lengi en stundum virkar hann hreinlega latur á vellinum. Barcelona gjörbreyttist til hins betra þegar Etoo sneri aftur eftir meiðslin í vetur og yfirferð hans, áhugi og vinnusemi er eitthvað sem Eiði sárlega vantar, auk hraðans. Annars hefur mér lengi fundist að Eiður eigi ekki að spila fremst, frekar sem fremsti miðjumaður.

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.6.2007 kl. 06:09

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Fórstu að bjarga stráknum í gær?? sá var heppinn að drepa sig ekki.  Sólskinskveðja norður.

Ásdís Sigurðardóttir, 30.6.2007 kl. 13:07

3 Smámynd: Ragnar Bjarnason

Nei Ásdís ég fór ekki í útkall í gær eða við hér á Laugum. Aðaldælingar sáu um björgunina. En annars hefði ég líklega ekki komist þar sem ég var á leið til Húsavíkur að dæma knattspyrnuleik.

Ég er svo að mestu leyti sammála þér Gunnar með Eið Smára, fyrir utan að ég hef aldrei verið sérstakur aðdáandi hans einhverra hluta vegna.

Ragnar Bjarnason, 30.6.2007 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband